Sjómannadagsblaðið - 01.06.1995, Blaðsíða 125
stjórnpalli, skipherrann og forstjórinn.
Veður var hvasst af suðaustri, níu
vindstig og sjór nokkuð úfinn. En Þór
er gott sjóskip, klauf knálega rismiklar
öldurnar og stefndi í austurveg. Ekki
skilaði honum þó ýkjafljótt gegn
stormi og sjóum, enda varð mjög að
draga af vélunum, þótt sterkur sé
byrðingurinn og vel vandað til alls sem
er ofanþilja.
Nú er að segja frá Gunnari Berg-
steinssyni. Hann vék þegar að
símanum og freistaði að ná í þá menn
Landhelgisgæslunnar sem voru á
lausum kjala. En honum tókst ekki að
hafa uppi á þessum mönnum, enda
var þetta á sunnudegi. Hann vissi að
Ægir var í heimahöfn og hringdi til
Garðars Pálssonar, sem er - eins og
áður hefur verið getið - fyrsti stýri-
maður á Ægi. Gunnar sagði honum
hversu ástatt væri og bað hann að vera
trúnaðarmann Landhelgisgæslunnar í
flugvél sem ætti að leysa Glófaxa af
verðinum. Garðar kvaðst geta farið og
tók þegar að týgja sig. Skömmu síðar
hringdi Gunnar aftur og kvaðst hafa
fengið Gunnar Ólafsson, fyrsta stýri-
mann á mælingaskipinu Tý til að vera
Garðari til aðstoðar.
Garðar hringdi á bifreið og hélt síðan
að heiman. Hann kom við hjá
Gunnari Ólafssyni og því næst var
ekið suður á flugvöll. Þar beið
flugvélin Snæfaxi, albúin til farar. I
henni voru tveir menn, flugstjórinn,
Aðalbjörn Kristbjarnarson, og að-
stoðarmaður hans, Sigurður Haukdal.
Flugvélin lyfti sér til flugs klukkan
hálffimm og flaug austur yfir
Reykjanessfjallgarð og út yfir sjó hjá
Eyrarbakka. Síðan var flogið austur
með ströndinni. Vindur var allhvass af
suðaustri, en storminn lægði meir og
meir eftir því sem austar dró.
Eftir þriggja stundarfjórðunga flug
sveif Snæfaxi þar yfir sem Þór klauf
öldurnar með hvítan foss fyrir stafni
°g bógum. Var það suður af
Drangshlíðarfjalli, sem er vestan við
Skógarfoss. Þá er klukkan var hálfsex
höfðu þeir Garðar samband við áhöfn-
ina á Glófaxa. Hún sagði þeim
einkennisbókstafi togaranna sem
brotlegir voru, og þegar Snæfaxi kom
í sjónmál flaug Glófaxi yfir skip
sökudólganna til þess að sýna
Snæfaxamönnum sem greinilegast
hvar þau væru. Klukkan sex flaug
Snæfaxi yfir Van Dyck og fimm mín-
útum síðar yfir skipið sem merkt var
0-294. Síðan kvaddi Glófaxi og hélt
heimleiðis. Glófaxi lenti á
Reykjavíkurflugvelli kl. 19.15“
Van Dyck leggur á flótta
„Þeir Garðar og Gunnar mældu nú
Hér hefur Van Dyck reynt að breiða yfir nafh og númer — en með litlum árangri.
Garðar Pálsson var trúnaðarmaður
Landhelgisgœslunnar um borð í Snœfaxa.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
125