Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1995, Blaðsíða 61

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1995, Blaðsíða 61
nu reynt að setja út, en það reyndist erfitt: Þeir áttu að renna eftir Serstökum sliskjum í sjóinn þegar þörf krefði. En þetta virkaði ekki og kann °rsökin að hafa verið sú að þeir hafi gengið til við sprenginguna og sliskjurnar skekkst. Gekk maður undir ^anns hönd að koma þeim í sjóinn og fyrst stjórnborðsflekanum. Fór svo að Það tókst. Konum og börnum meðal ^arþeganna var auðvitað boðið að ^asta sér í sjóinn og freista þess að K°mast upp á flekann — en vitanlega Þ°rðu fæstir að kasta sér í grængolandi hafið við slíkar aðstæður. Veður var enda farið að versna, og var á suð- austan strekkingur, líklega 6-7 vind- stlg- Flekann rak því í byrjun tóman aftur með skipinu. En þar tók fhniann Guðjónsson bryti á sig rögg °g stökk út á flekann. Síðar komust fleiri á flekann, flest skipverjar. fnginn farþeganna áræddi að stökkva 1 sjóinn á eftir flekanum eins og ég Sagði, heldur settust þeir flestir upp í ^'bátinn sem áður var nefndur og ætlað var að fljóta upp sjálfkrafa. En Sv° fór að bátnum hvolfdi og var það nrsök þess hve margir af farþegunum fc °rust.“ ^gt dró saman með mér og flekanum ”^f mér er það að segja að þar sem mér Vndist lengi vel að ekki mundi takast sjósetja stjórnborðsflekann, fór ég akborðsmegin — eða þangað þar Sem verið var að glíma við hinn ekann. Ekki vannst það verk auðveldlega en að lokum fór svo að attn rann í sjóinn. Var þá svo komið a skipiö var byrjað að taka inn á sig sJ°mn að aftan og seig hann fremur hr ^ægt inn eftir dekkinu. Fyrir framan rnna var stór kassi sem í var bíll sem ^fiaður var forseta íslands. Stökk ég nn upp £ þennan kassa og kastaði mér honum í sjóinn. Vonaðist ég til að 11 a fickanum, en vegna hvassviðrisins var hann tekinn að fljóta nokkuð hratt burtu frá skipinu. Dró því mjög hægt saman með mér og flekanum — en að lokum hafðist það. Var ég þá meira en uppgefinn, enda mun ég hafa verið næst síðasti maðurinn sem á þennan fleka komst. Rétt á eftir kom einn mannanna sem við höfðum bjargað af olíuskipinu. Var hann allur reifaður, enda höfðu læknishjónin verið að gera að sárum mannanna af olíuskipinu allt þar til sprengingin varð, en margir þeirra voru illa brenndir eftir að hafa barist við eldinn um borð. Þessi maður synti af einbeitni að flekanum og virtist sallarólegur. Komst hann upp á flekann og var þar fyrir einn yfirmanna hans. 19 félagar hans af þeim 21 sem við höfðum bjargað fórust. Á flekanum var líka fyrir skipstjórinn á Goðafossi, Sigurður Gíslason. Hann hafði stokkið í sjóinn á líkum stað og ég en miðað betur. Var það vegna þess að hann var í stórri hermannakápu sem þandist út af lofti þegar hann kom í sjóinn, svo hann þeyttist áfram eins og belgur. Þess ber líka að geta að hann var mjög vel syndur maður. Fékk hann sér oft sundsprett í sjónum þegar legið var við akkeri og í New York fór ég stundum með honum í sundlaug. Sagði hann enda við mig að aldrei væri að vita hvenær það kæmi sér vel að vera vel syndur og rættust þau orð hans þarna... Goðafoss mun hafa sokkið sjö til tíu mínútum eftir að skotið hæfði hann. Sáu menn frá flekanum er hann reis upp á endann, en hvarf svo í hafið að stundarkorni liðnu.“ Reru til að halda á sér hita „Um björgunarflekana er það að segja að þeir voru byggðir utan um tunnur á þann hátt að holrúm myndaðist í miðju flekans og sátu menn á tunn- unum eins og bekk. Holrúmið var að mestu fullt af sjó og svo gengu sjó- gusurnar yfir fólkið öðru hvoru. Af þeim sem björguðust höfðu fleiri komist á stjórnborðsflekann og var vistin kannske öllu verri þar en hjá okkur, þar sem hann var mjög þungur og virtist við það að sökkva. En þegar á leið bar flekana hvorn að öðrum og var þá létt á stjórnborðsflekanum með því að flytja nokkra yfir til okkar. Við brugðum á það ráð að binda flekana saman, en vegna sjógangs urðum við að losa þá sundur aftur, því hætta var á að þeir löskuðust er þeir rákust saman. Ekki hefur liðið nema um klukku- stund frá því er skipið var skotið niður þar til björgunarflugvélar frá Keflavíkurflugvelli bar að. Vörpuðu þeir niður allstórum gúmmíbjörg- unarbáti og flotbeltum, en björgunar- báturinn kom niður í órafjarlægð frá þeim stað þar sem okkar fleki var. Stjórnborðsflekinn var þá enn nokkuð langt frá okkur og skildist mér á þeim sem á honum voru að þeir hefðu ekki einu sinni orðið varir við þessa himna- sendingu — og sumir sáu ekki einu sinni flugvélarnar. Margreyndi ég það líka eftir á að menn höfðu mjög ólíkar sögur að segja um reynslu sína þennan tíma, ekki síst hvað snerti sjósetningu björgunartækjanna: Einn sá þetta og annar hitt og bar mönnum alls ekki alltaf saman. Við sáum nú til korvetta og herskipa sem dreif að frá Reykjavík. Veður fór sífellt versnandi og var það orðið mjög slæmt þegar okkur loks var bjargað um borð í eina bresku korvettuna, Northern Reward. Hefur það verið í ljósaskiptunum, líklega milli fjögur og fimm um daginn. Höfðu þeir verið að varpa niður djúpsprengjum öðru hvoru og sögðu sjóliðarnir okkur að þeir hefðu ekki talið rétt að stansa og bjarga okkur fyrr en það hefði verið talið öruggt vegna kafbátanna. Vitanlega vorum við þjökuð og til að byrja með var okkur mjög kalt, en meðan við vorum á flekanum var eins ^ÖMannadagsblaðið 61
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.