Sjómannadagsblaðið - 01.06.1995, Blaðsíða 114
Ragnar Kristjánsson vélstjóri skýrði fyrir
okkur aðstœður í vélarrúmi bátsins.
I efri brúnni standa þeir hér talið frá vin-
stri: Sigurður Guðjónsson, Ragnar
Kristjánsson og Arni Sigurpálsson.
öllum helstu siglingatækjum, þar á
meðal GBS-staðsetningartæki, og
hægt er að sjósetja hann og taka um
borð í talsvert vondu veðri. Báturinn
heitir „Siggi Guðjóns“ og er skírður í
höfuðið á félaga okkar sem hér er
staddur - Sigurði Guðjónssyni. Hann
var formaður Sigurvonar í 25 ár, eða
frá 1966-1991. Við af honum tók
Sigtryggur Pálsson, en nú er sonur
Sigurðar, Guðjón Ingi, formaður
sveitarinnar.“
Örugg þjálfun áhafnar
„Frá byrjun hefur mikið verið lagt upp
úr þjálfun áhafnarinnar, sem vissulega
bjó þó yfir mjög mikilli reynslu eftir
veruna á Sæbjörginni. Þegar báturinn
kom fyrst komu hingað tveir
Þjóðverjar, skipstjóri og vélstjóri, og
héldu þeir námskeið í öllu því sem
snertir bátinn og búnað hans. Þá hafa
menn héðan verið sendir til
Stonehaven og Isle of Wight í
Bretlandi þar sem þeir voru þjálfaðir í
meðferð björgunarbáta hjá Breska
björgunarfélaginu. Við höldum og
reglulegar æfmgar og tökum nýliða
með okkur í túra sem aukamenn og
kennum þeim handbrögðin. Þannig
teljum við að þeir fái bestu æfinguna.
Þjálfunin verður til þess að mann-
skapurinn er mjög fljótur að bregðast
við. 1 tvö skipti í röð liðu til dæmis
ekki nema fimmtán mínútur frá því er
kalltækið pípti á okkur heima þar til
við vorum komnir af stað frá bryggju.
Við reynum að vera ávallt fimm í
áhöfn, en sex menn eru með kalltæki
svo alltaf er einn upp á að hlaupa. Sé
um sjúkraflutninga að ræða kemur
sjúkraliði með að auki.
Héðan frá Sigurvon í Sandgerði hafa
menn farið til ýmissa staða úti um
land á vegum SVFI og þjálfað félaga í
öðrum sveitum í meðferð björgunar-
báta. Hefur Sveinn Einarsson stýri-
maður okkar farið flestar slíkar ferðir
ásamt Guðmundi Ólafssyni. Teljum
við að nú sé hér um borð það þjálfaður
mannskapur að honum megi treysta
við hvaða aðstæður sem er, enda
verður svo að vera.“
Reiðubúnir að fara út meðan
fært er út úr innsiglingunni
„Varla þarf að taka fram að Hannes Þ.
Hafstein er óskaplega mikil framför
frá gamla bátnum, því nú treystum við
okkur út í hvaða veður sem er - svo
lengi sem fært er út úr innsiglingunni
hér.
Báturinn fór í 30 útköll árið 1993, 27
útköll árið 1994 og á þessu ári hafa
komið 7 útköll þegar þetta er talað.
Utköllin eru af mjög ólíku tagi -
þjónusta við skip, dráttur í land og
köfun til þess að skera úr skrúfu.
Þannig má segja að þetta séu björgun-
ar- og þjónustuferðir, en við höfum
114
Hér liggur báturinn við bryggjuna sem
sérstaklega var byggð fyrir hann og senn
mun verða stœkkuð. Hún mun notast
ýmsum minni bátum einnig. (Ljósrn.
Sjómannadagsbl./AM)
dregið allt frá minnstu trillum upp 1
stærstu loðnuskip flotans, svo sem
Sigurð VE. Hann hafði fengið nótina
í skrúfuna og þar sem ekki var hægt að
kafa vegna veðurs drógum við hann
suður fyrir Reykjanes. Eitt sinn vorum
við kallaðir út vegna flugvélar sem var
að verða eldsneytislaus, og þá má geta
um að í október sl. björguðum við báti
sem leki haíði komist að. Við dældum
úr honum og drógum hann til
Hafnarfjarðar, en hér eru fyrir hendi
dælur sem flytja má um borð í skip-
Enn höfum við brunaslöngur og
brunadælur, en á þann búnað hefur
ekki reynt fram til þessa.“
Fyrsta ferðin alvarlegs eðlis
„Blessunarlega höfum við verið svo
heppnir að eina mjög alvarlega
útkallið var fyrsta ferð bátsins. Þetta
gerðist þann 28. apríl 1993 eða aðeins
25 dögum eftir að við fengum skipið-
Þar var um að ræða Sæberg AK sem
fórst hér úti á Faxaflóa. Þrír af fimm
manna áhöfn komust í gúmmíbát og
fann Freyja GK hann og bjargaði
mönnunum. Við vorum kallaðir ut
ldukkan 01.20 um nóttina og vorum
komnir á slysstað um klukkan 03-00-
Þar leituðum við ásamt fleiri skipum
fram til hádegis, en þvf miður fundust
þeir rveir sem saknað var ekki. Þess
skal þó getið að við höfum fengið
nokkur útköll sem talin voru alvarleg 1
SJÓMANNADAGSBLAglE