Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1995, Síða 60

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1995, Síða 60
Tundurskeyti hæfir Goðafoss „Við höfðum orðið vitni að mörgum hörmulegum atburðum í siglingum okkar og nú var komið að okkur á Goðafossi. Við vorum á leið frá Lock Ewe í Skotlandi til Reykjavíkur með 1.220 tonn af vörum og höfðum orðið að bíða í viku eftir skipalest. Þetta var lítil lest, aðeins sex skip. Hún bar ein- kennisstafina UR-142 og var undir forystu Goðafoss. í fylgd með okkur voru fimm vopnaðir togarar, bæði norskir og breskir, en engir tundur- spillar. Vorum við komir hér suðvestur undir landið þann 9. nóvember 1944. Skellur þá á okkur mjög slæmt verður með hríð. Taldi skipstjóri að ekki væri ráðlegt að halda í „Húllið“ eða Reykjanesröstina með skipalestina í slíku veðri og ákvað að við skyldum bíða birtingar. Af þessum sökum var það ekki fyrr en snemma að morgni þess 10. nóvember að við lögðum í röstina. En líklega hefur eitt skipanna ekki náð þeim merkjum sem send voru, því þegar við komum norður undir Garðskaga sjáum við skip í björtu báli langt úti á Faxaflóa. Reyndist það vera um tíu þúsund lesta olíuskip Shirwan að nafni sem var í lestinni með okkur. Og skömmu síðar, þegar við vorum komnir inn fyrir Garðskaga, rekumst við á tvo björgunarbáta frá þessu skipi og í þeim var 21 maður. Við tókum skipbrotsmennina um borð og héldum síðan för okkar áfram djúpt út af Skaga og Keflavík og sigldum inn Flóann. En ekki höfðum við siglt nema í um það bil tuttugu mínútur — ldukkan var rétt að verða eitt að degi til — þegar tundurskeyti hæfir Goðafoss. Þetta var ógurlegt högg. Eg var stadd- ur inni í loftskeytaklefanum sem var beint aftur af brúnni og korta- klefanum og stóð ég við borð og var að reyna að kíkja út um kýrauga. Man ég að við höggið gáfu fæturnir sig alveg og ég seig niður á gólfið, enda fannst mér skipið vera að hefjast í háa loft. Ekki féll ég eins og þeir sem frammi í brúnni voru og mun það hafa verið vegna þess stuðnings sem ég hafði af borðinu. Á borðinu var mót- takari og við höggið rifnaði hann upp af festingum sínum og kastaðist út í bekk sem þarna var.“ þá að tínast upp á bátadekkið. Ekki var neinn asa að sjá á neinum — allk voru sem dasaðir og líkt og mara hvíldi yfir hverjum og einum. Minnist ég þess að þarna á þilfarinu vorU kistur fyrir björgunarbelti og voru hjónin dr. Friðgeir Ólason læknir og Sigrún Briem Ólason læknir, sem voru meðal farþega, að spyrja hvar beltin væru. Með þeim voru þrjú börn Hér hefur tundurskeyti h<zft breskt flutningaskip. Stuttu efir að myndin er tekin hvarf ' hafið með allri áhöfh. Líkt og mara hvíldi yfir öllum „Tundurskeytið hafði hæft mitt skipið bakborðsmegin, rétt fyrir neðan mess- ann þar sem menn sátu að snæðingi. Allir í messanum komust þó út, en sumir slasaðir eins og Eyjólfur Eðvaldsson fyrsti loftskeytamaður. Hann komst síðar á fleka sem ég átti eftir að komast á einnig, en lést þó eins og síðar greinir frá. Ég staulast nú fram í brúna og finn þar fyrir skipstjórann ásamt fleirum. Segi ég skipstjóra að loftskeytatækin séu hrunin niður og því óvirk. Þess skal getið að utan á brúna við þann stað þar sem loftskeytatækin voru fyrir innan höfðu verið settar stálplötur svo tækin löskuðust síður - þó ekki væri nema vegna vélbyssuskothríðar. En þessir stálveggir hrundu gjörsamlega! Skipstjóri tók orðum mínum af ró- semi og sagði þetta ekki gera neitt til, þvf öll nærstödd skip hefðu séð þetta. Ég hélt niður úr brúnni og var fólkið þeirra. Sýndi ég þeim það og fóru þaU þar með upp í 1-bátinn sem kallaður var. Þess skal getið að þetta var þungur bátur með hjálparvél og erfitt við hann að eiga. Hann var stjórnborðs' megin og sat á stórum stólum. Var hann ekki „svingaður út á davíðum eins og sagt er, heldur var ætlast til að með því að skera á böndin sem héldu honum við dekkið mundi hann losna og fljóta upp ef skipið sykki. Báturinn bakborðsmegin hafði hins vegar möl' brotnað við sprenginguna." Viðureignin við björgunar- flekana „Auk björgunarbátanna á frani' dekkinu voru tveir lífbátar í viðbót yfir þriðja farrými á afturdekkinu og °S þar voru líka tveir flekar. Þeir losnuðn loks þegar skipið sökk. Enn voru tveir flekar í viðbót fremst a bátadekkinu rétt við brúarvængina’ einn hvorum megin. Þessa fleka vaf 60 SJÓMANNADAGSBLAgíE
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.