Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1995, Page 52

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1995, Page 52
einnig. En þá hafði einhver losað tóið í talíunni sem þurfti til að koma henni út, en þetta tó þurfti að vera fast. Báturinn var skorðaður ofan á stól og þetta lausa tó gerði nú ómögulegt að lyfta honum upp af stólnum. En meðan ég er að snúast í kring um þetta er skipinu farið að halla það mikið að skuturinn á lífbátnum var kominn langt út yfir bátadekkið. Fyrir vikið vildi svo vel til að báturinn rann sjálfkrafa úr stólnum og út í sjó! Mér datt fyrst í hug að klifra upp á ugluna og láta mig síga þaðan niður í bátinn — en þess gerðist ekki þörf: skipinu var tekið að halla svo mikið að það var eiginlega slétt af bátadekkinu og út í bátinn. Því mátti stökkva út í hann á réttu róli — og það gerði ég. Ur bátsstefninu var fest svonefnd fangalína í yfirbygginguna á skipinu. Til þess að losa bátinn frá línunni þurfti að slá fleyg úr lykkju og þar með hefði báturinn orðið laus. Vík ég að þessari línu hér á eftir. Ólafur Tómasson ætlaði nú að stökkva út í bátinn til mín, en báturinn slóst svo mikið til að Ólafur lenti á milli bátsins og skipssíðunnar. Var ekki annað sýnna en að hann mundi kremjast þarna í milli — en til allrar hamingju tókst mér að ná til hans og draga hann upp í bátinn. Kom nú hver maðurinn af öðrum og stökk út í bátinn til okkar, bæði far- þegar og skipverjar. En nú lá við að illa færi: Aftari uglan sem var skrúfuð út kræktist inn yfir borðstokkinn á bátnum og var stór hætta á að hún mundi hvolfa honum. Rauk ég þvf til og reyndi að losa böndin af blökkunum á henni, en þetta voru gríðarstórar margskornar blakkir. A þeim var handfang til að halda í og sleppikrókur, en ég fékk engu áorkað, enda kunni ég lítt á þennan útbúnað. Skreið ég því niður í kjöl á bátnum og reyndi að losa krókinn á blökkinni af málmlykkju í bátsbotninum og fyrir eitthvert glópa- lán tókst mér það. En þá var sú raunin eftir að koma þessari gríðarþungu blökk upp úr bátnum. Þetta tókst mér með einhverju ógurlegu átaki og þar með gátum við ýtt bátnum frá.“ Dettifoss hverfur í djúpið „En rétt í því er ég hef komið blökk- inni út fyrir rís Dettifoss upp á endann með stefnið niður og stendur beint upp í loftið. Sáum við hvar sjórinn var tekinn að vætla niður reykliáfinn á skipinu, en brúin var þegar komin í kaf. Enn var línan úr bátsstafninum sem ég gat um föst við brúna. En til allrar hamingju hafði einn af far- þegunum, mig minnir að hann hafi verið Páll Melsted, fundið öxi og hjó nú sundur lfnuna í einu vetfangi. Þar með var báturinn að fullu laus frá skipinu. I sama bili byrjuðu þessir lifandis, óskapa skruðningar í skipinu og við fundum þennan ógurlega loftþrýsting frá því. I sama mund stingst Dettifoss niður og sá ég að skrúfan snerist enn. En það síðasta sem hvarf í djúpið var íslenski fáninn - - og það get ég sagt þér að var ógleymanlega dlfinning. Því verður ekki með orðum lýst — maður varð á einhvern hátt svo tómur allur saman. AJlt var svo snautt og autt og manni fannst maður vera svo mikill ein- stæðingur á þessu augnabliki...“ Tveir á fleka „Meðan á þessu stóð sáum við fólk bera að, eins og ég sagði. Þeirra á meðal var Jón Bogason bryti. Hann stóð þarna við 3-lúguna og sömuleiðis Nikólína Kristjánsdóttir þerna. Jón tók sjórinn þegar skipið sökk, en Nikólínu náðum við upp í bátinn. Það fyrsta sem mér datt í hug var að róa að Jóni, því ég sá vel hvar hann flaut. Við settumst undir árar og tókum að róa í átt til hans — en skildum ekkert í því að skyndilega sást hann ekki lengur! Það var sama hvernig við skimuðum og skyggndumst um og var þetta þvl skrýtnara, þar sem hann var í lífbelu og hefði átt að vera á floti. Við sveimuðum þarna um án árangur5 og loks rerum við frá. Það næsta sern við sáum var fleki sem bundinn hafð’ verið við vantinn við frammastrið a skipinu og hafði hrokkið á flot við sprenginguna. Á flekanum sáum við að voru tveir menn. Við tókum að roa til þeirra en sáurn þá mikið brak ur skipinu sem við könnuðumst við að var farmur úr framlestinni - síga' rettukarton og allt mögulegt annað. Við reyndum að sjá hvort einhver vseri lifandi á floti innan um brakið - en við sáum ekki neitt. Rerum við því áfran1 að flekanum og á honum voru Tryggvl Steingrímsson þjónn og Theódór Helgi Rósantsson farþegi. Tókum við þá um borð, en áður kallaði ég ril Tryggva að taka með sér hlífðarföt, teppi, vistir og annað sem átti að vera í kassa um borð í flekanum. En enga11 kassa var að sjá! Kom á daginn seinna að flekinn flaut á hvolfi og var þessl kassi á þeirri hlið flekans sem niðu' sneri.“ Tvær konur „Enn rerum við frá og þegar róið hafð* verið nokkurn tíma sáum við tvaer kvenpersónur á floti í sjónum og voru báðar á grúfu. Eg sagði að við skyldurn fyrst taka þá sem fjær var, því okkur mundi reka niður að hinni á meðan við tækjum hana upp. En svo undar- lega vildi til að þegar við komunt að þeirri konunni sem nær var sló bátn' um flötum. Þessir lffbátar voru ekk1 léttir að róa og var því ekki um annað að ræða en taka hana fyrst um borð- Ekki datt okkur annað f hug en aö hún væri dáin. En svo merkilega viU1 til að þegar við förum að hnoðast nteð hana tekur hún að umla og eft11 frekara hnoð tekur hún öll að lifna við 52 SJÓMANNADAGSBLAÐjU
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.