Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1995, Page 53

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1995, Page 53
' °g lifir enn þann dag í dag! Þá rerum v'ð að hinni en þá var hún horfin og Sast ekki meir. Vorum við nú 13 um borð í bátnum. Nú tókum við að róa á móti bárunni. % hef enn ekki getið þess að stærsti flekinn á skipinu sem var aftast á því hafði losnað og komist á flot: Yfir á þennan fleka höfðu komist 17 manns °§ terum við því í átt að honum. En þessi fleki var ekki í góðu ástandi og lá v'ð að hann væri að sökkva undan fólkinu. Flekinn var smíðaður utan Una stáltunnur og sumar voru farnar að ryðga það mikið að sjór komst í þær.“ ^ylgdarskipið kemur til bjargar »Við sáum fylgdarskipið, sem var v°pnaður togari, þarna skammt frá og skildum ekki í að þeir skyldu ekki sigla að flekanum og taka fólkið upp. Helst ^ettur mér í hug að ástæðan hafi verið að þeir hættu sér ekki á sama stað og v'ð höfðum orðið fyrir árásinni. Og þar sem þeir gáfu okkur engan gaum ðatt einhverjum í hug að setja upp Seglið á bátnum og halda af stað til Londonderry. En sú tillaga fékk ekki þljómgrunn svo við héldum áfram. Sáum við þá að fylgdarskipið er tekið að sigla rólega í átt að flekanum. Tóku þe*t alla af flekanum um borð og þéldu að því búnu til okkar og tóku oltkar fólk um borð. Var nú haldið með okkur til bæjar sem fefnist Stranrear og er utarlega í ^lyde-firðinum. Þar var okkur komið ^rir í hermannaskálum og vorum við þar um nóttina. Blessað fólkið þarna var mjög hjálplegt og safnaði fatnaði þanda þeim sem verst voru klæddir og aðstoðuðu okkur á alla lund. Daginn eftir var okkur smalað saman upp í rutu 0g haldið með okkur á járn- þrautarstöð og flutti járnbraut okkur úl Glasgow. Þaðan flutti sama eða °nnur lest okkur síðan til Edinborgar. 1 Edinborg var viðdvölin þó ekki löng, Þann 21. febrúar sl. komu margir þeirra saman sem enn lifa af þeim er af komust í Dettisfossslysinu fyrir 50 árum. Samkoma þeirra var á Hótel Borg og var margs að minnast. 1fremri röð eru: Anton Líndal, Baldvin Ásgeirsson, Ásgeir Magnússon, Ólafitr B. Ólafsson, Tryggvi Steingrímsson og Bjarni Árnason. íafiari röð: Gísli Guðmundsson, Geir J. Geirsson, Erlendur Jónsson og Davíð S. Jónsson. því senn var farið að undirbúa flutning okkar til Leath, en þar var Brúarfoss staddur og skyldi hann flytja okkur heim.“ Heim með Brúarfossi „Afgreiðslumaður Eimskip, McArthur, var kominn til Edinborgar að taka á móti okkur og lét hann sér mjög annt um okkur. Við áttum að fara með strætisvagni til Leath, en McArthur gerði sér svo mikið far um að aðstoða okkur að hann fór einar tvær ferðir með skipbrotsmenn f litlum Ford Junior bíl sínum til Leath. Gerði hann það til þess að flýta fyrir flutningnum. Um borð í Brúarfossi var ágæta vel tekið á móti okkur. Allir voru auðvitað peningalausir og allslausir. En okkur voru útvegaðir skömmtunarseðlar og Eimskip fékk okkur gjaldeyri svo við gætum keypt það sem fyrir skömmt- unarseðlana mátti fá, föt sem annað. Gilti það bæði um skipshöfn og far- þega, þótt strangt tekið bæri félaginu aðeins að annast áhafnarmennina, því sendiráðið átti að aðstoða farþega. Ekki man ég hve marga daga við urðum að bfða uns Brúarfoss lagði af stað heim, en þeir voru nokkrir. Heimsiglingin gekk með ágætum og ekki frá neinu minnisstæðu að segja frá henni.“ Sökk á fimm til átta mínútum „Sem kunnugt er fórust 15 manns í Dettifossslysinu, en 30 björguðust. Flestir þeirra sem fórust höfðu hafst við frammi í skipinu. Menn voru að borða morgunverðinn klukkan hálfníu, því þá voru vaktaskipti og sumir voru að tygja sig til þess að fara aftur í - þeirra á meðal kyndarinn Helgi Laxdal, sem var á leið aftur eftir á sína vakt. Merkilegt er þó að tveir af þeim mönnum sem voru frammi í komust nær óskaddaðir frá þessu. Annar var Kristján Símonarson háseti sem var í efri koju stjórnborðsmegin fremst. Hann komst af heill á húfi. Hinn var Kolbeinn Skúlason kyndari sem var bakborðsmegin í aftasta her- berginu. Hann bjargaðist líka. Urðu þeir þó að klofa yfir spýtnabrak og alls kyns dót, því lúkarinn var ein rúst. Björgun þeirra þótti ganga kraftaverki næst... jJÓfvlAN NADAGSB LAÐIÐ 53
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.