Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1995, Page 96

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1995, Page 96
Höfundur frásagnarinnar „ Gúanó- eyjan" er Joseph Conrad (1857- 1924) sern notið hefur óumdeildrar viðurkenningar sem mesti snillingur allra tíma í að lýsa sjómönnum og lífi þeirra. Sögur og skáldsögur Conrads gerast margar í Suður- höfum og er „ Gúanóeyjan “ fengin úr einni af skáldsögum hans - „Lord Jim. “ Skáldagan segir frá ungum stýrimanni, Jim, sem verður á að fremja alvarlegt glappaskot og eru skipstjórnarréttindin dœmd af honum jyrir rétti í Singapore. Þegar Jim er nýlega genginn út úr réttar- salnum rekst vinur hans á tvo furðufugla með enn furðulegri áform á prjónunum og eru þeir gott dtemi um snilld Josephs Conrad í mannlýsingum. Ritstjóri Sjómanna- dagsblaðsins gerðist svo djarfur að þýða kaflann. Joseph Conrad Joseph Conrad Gúanóeyjan „Maður fyrir borð“ var sagt djúpum rómi fyrir aftan mig. Ég snerist á hæli og kom auga á náunga sem ég þekkti dálítið — vestur-Astrala. Chester hét hann. Hann hafði einnig verið að horfa á eftir Jim. Maður þessi var ákaflega bringubreiður, með veðurbar- ið, nauðrakað andlit, mahogníbrúnt að lit. A efri vörinni gat að líta tvo smáa brúska úr járngráu, þykku og stríðu hári. Hann hafði verið perlukaf- ari, selt strandgóss, stýrt lausakaupfari og þá hvalveiðiskipi, muni ég rétt; hann hafði við orð að hann hefði kynnst hverju og einu af því sem að sjómennsku lýtur — nema sjóránum. Hinar eiginlegu veiðilendur hans voru Kyrrahafið, bæði það nyrðra og það syðra; en nú hafði hann ferðast alla þess leið frá vetvangi umsvifa sinna í því skyni að festa kaup á ódýru gufuskipi. Fyrir skömmu — eða svo sagðist honum frá — hafði hann ein- hvers staðar uppgötvað gúanóeyju. En landtaka á henni var háskaspil og þær aðstæður sem annars voru fyrir hendi til að leggjast við akkeri ótryggar - vægast sagt. „Hún er á við gullnámu“ hrópaði hann upp yfir sig. „Hún ef þarna alveg inni í miðjum Walpok' skerjaklasanum, og þótt satt megi vera að akkerisfesta fáist ekki þegar 3 minna dýpi kemur en fjörutíu faðma - þá hvað um það? Svo má eiga von 3 fellibyljum þarna. En þetta er rakið gróðafyrirtæki. A við gullnámu meira en það! Samt finnst ekki einn einasti auli sem kemur auga á þetta- Mér heppnast ekki að fá nokkurn skipstjóra né útgerðarmann til 3f* koma í námunda við staðinn. f>vl ákvað ég að ég skyldi sjálfur takast flutninginn á þessari guðs gjöf á hend' ur.“ í þessum tilgangi þurfti hann þa að verða sér úti um gufuskip, og e§ vissi að einmitt um þessar mundir var hann á bólakafi í samningaum' leitunum við persneskt fyrirtæki um leigukjör á ævagömlum sjóminjasafn' grip, briggskipi með níutíu hestafl3 hjálparvél. Við höfðum hittst °f> spjallað saman fáeinum sinnuna- Hann horfði íbygginn á eftir Jm1- „Tekur hann þetta nærri sér?“ spufd1 hann í fyrirlitningartóni. „Mjög svo sagði ég. „Þá er ekki mikið í hann spunnið“ lýsti hann yfir. „Hvað þýð*f að æðrast yfir svona nokkru? Svon3 tittlingaskít. Enginn hefur orðið af* manni með því móti. Þú verður að l>ra á málin nákvæmlega eins og þau blasa við — gerirðu það ekki geturðu alveg eins lagt upp laupana strax. Þú munf aldrei koma einu né neinu áleiðis um dagana. Sjáðu mig. Ég hef gert mef það að reglu að láta aldrei neitt á m>r fá.“ „Já“ sagði ég, „þú lítur á mál>n eins og þau blasa við.“ „Mikið vildí e? að ég sæi hann viðskiptafélaga minn a leið hingað, ekkert vildi ég fremuf sagði hann. „Þekkirðu han» viðskiptafélaga minn — ham1 Robinson gamla? Já, þann eina °v sanna Robinson. Þekkir þú hann ekk>- Þann alræmda Robinson, mannin11 sem smyglað hefur meira af ópíum °í veitt fleiri seli um sína daga en nokknf 96 SJÓMANNADAGSBLAPjid
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.