Bæjarskrá Reykjavíkur - 01.01.1929, Blaðsíða 382
382
Stýrimannaf jelag íslands
er stofnað 19. 'febr. 1919. — Meðlimir tæpt 100. — Stjórn skipa: Pálm*
Loftsson (form.), Jón A. Pjetursson (rit.), Sigurður Gislason (gjaldk.)r
Þorvarður Björnsson (meðstj.).
Stýrimannaskólinn
er stofnaður með lögum 22. mai 1890 og skiftist í: Fiskimannadeild, 1
vetur. — Farmannadeild, 2 vetra. — Skólastjóri er Páll Halldórsson (sið-
an 1901). — Fastakennari er Guðmundur Kristjánsson.
Styrktarsjóður W. Fischers
er stofnaður 2G. júní 1889 með 20 þús. kr. höfuðstól, dánargjöf W.
Fischers stórkaupm., og síðan hafa sjóðnum bæst aðrar 20 þús. kr. frá
erfingjum gefanda. — Vöxtum af sjóðnum skal verja lil styrktar ekkjum
og börnum í Reykjavík og Gullbringusýslu, sem mist hafa forsjáinenn
sína í sjóinn, og til styrktar ungum sjómönnum þaðan til að nema stýri-
mannafræði. — Sjóðurinn er um 50 þús. — Stjórn skipa: Skrifstofustjóri
í atvinnumálaráðuneytinu, Nic. Bjarnason kaupm. (síðan 1901).
Styrktarsjóður V. Gigas,
handa duglegum íslenskum fiskimönnum, á að styrkja árlega 2 isl. fiski-
inenn, annan í Reykjavik, hinn á ísafirði. — Stofnfje 3 þús. kr. (Skipul.-
skrá staðfest 10. júni 1898). — Sjóðurinn er í vörslum Stjórnarráðsins
og nemur um G þús. kr., vextir á ári um 300 kr. — Styrkur hefir aldrei
verið veittur úr sjóði þessum, enda sennilega aldrei um hann sótt.
Styrktarsjóður iðnaðarmanna í Rvík
er slofnaður 7. april 1895 í því skyni, „að styrlcja iðnaðarmenn i Reykja-
vík, sem og ekkjur þeirra og börn.“ — Árstillag kr. 5. — Sjóður 29000
kr. — Stjórn skipa: Einar Finnsson, járnsm., (form.), Halldór Sigurðs-
son, úrsm., (gjaldk.), Sigvaldi Bjarnason, trjesm., Haraldur Ilagan, úrsm.,
Vigfús Guðbrandsson, klæðsk.
Styrktarsjóður skipstjóra og stýrimanna við Faxaflóa
er stofnaður 2. júli 1894 í þeim tilgangi, „að styrkja stýrimenn og skip-
stjóra á þilskipum, sem gerð eru út til fiskiveiða í veiðistöðvum kringum
Faxaflóa, svo og ekkjur þeirra og börn.“ — Sjóður um 27 þús. kr. —
Stjórn sama og fyrir Öldunni.
Styrktarsjóður Verkamannafjelagsins Dagsbrún
er stofnaður af verkamannafjclaginu Dagsbrún 192G. — Sjóðurinn er
nú um 18 þús. kr. — Stjórn skipa: Kjartan Ólafsson (form), Felix Guð-
mundsson (rit.), Björn Jónsson, Slýrim.st. (gjaldk.), Sigurður Sigurðsson,
Brekkh., Jón Jónsson, Bræðrab.st. 21.
Styrktarsjóður verkamanna- og sjómannafjelaganna í Rvík
er stofnaður 3. apríl 1919. Tók til starfa 13. maí 1920. Höfuðstóll í byrj-
un kr. 104.422,00. Tekjur sjóðsins eru vextir og iðgjöld frá verkalýðsfje-
lögunum í Rvík, kr. 1,00 al' karlm. og 50 aur. af kvenm. — Styrkveiting-
ar frá byrjun til ársloka 1928 hafa numið nær 50 þús. kr. Sjóður i árslok