Bæjarskrá Reykjavíkur - 01.01.1929, Blaðsíða 385
385
kröfutti tíiTi!ins.“ — Moðlimir 188. —Stjórn: Ragnar Þórarinsson (forin.),
Brynjólfur N. Jónsson (gjaldk.), Magnús Jónsson (rit.).
Trvggingarstofnun ríkisins
!. okt. 1928 voru sameinaðar undir þessu nafni 2 stoftianir — Bruna-
bótafjelag íslands og Slysatrygging rikisins. — Tryggingarstofnun rikis-
ins er eftir sem áður í (vennu lagi, Örunabótafjelag íslands, stofnað með
lögum 3. nóv. 1913, me'ð rikissjóðsábyrgð. Það hefir skylduvátrygging á
ölhun húsum í kaupslöðum utan Reykjavikur, er hafa 300 íbúa eða fleiri,
og ábyrgist % virðingarverðs húsa. Auk ]>ess getur það vátrygt liús, sem
ekki eru i skylduvátryggingunni fyrir verðs. — Slysatrygging rikisins
var upphaflega stofnuð laust eftir aldamótin undir nafninu „Slysatrygg-
ing sjómanna." — Skylt er að tr.vggja gegn slysum samkvæmt lögurn frá
7. maí 1928, sein eru hin nýjustu um slysatryggingar. — Slysatryggingin
er i 2 deilduin: Sjómannatrygging og iðntrygging. — Slysatryggingu rik-
isins er stjórnað af 3 mönnum undir yfirumsjón atvinnumálaráðuneytis-
ins. — Stjórn þessa skipa: Halldór Stefánsson, Vigfús Einarsson, Hjeð-
inn Valdimarsson. — Forstjóri Tryggingarstofnunar rikisins er Halldór
Stefánsson. — Skrifstofa i Veltusundi 1. Opin ki. 10—-12 f. h. og 1—5 e. h.
Simi 015.
Ungmennafjelagið Velvakandi
er stofnað 13. inaí 1925. Tilgangur fjelagsins er að vernda islenska
tungu, efla þjóðlega siði og heimilisiðnað, og efhi andlegan og likamleg-
an þroska æskulýðsins. — Stjórn skipa nú^ Guðbjörn Guðinundsson
(foriu.), Ragnheiður Björnsson (rit.), Þorsteinn Bjarnason (gjaldk.).
Ungmennaskólinn í Reykjavík
er stofnaður með löguin 7. mai 1928. Tók til starfa 1. okt. 1929. Skóla-
tinii frá 1. okt. til 1. inaí. Húsnæði til bráðabirgða í Stýrimannaskólan-
um niðri. — lvent i 2 til 3 ársdeildum. — Skólagjald 75 kr. á vetri. —
Tala nemenda yfirstandandi skólaár 04. — Skólastjóri: Ingimar Jóns-
son. — Fastur kennari: Árni Guðnason, cand. mag. -— Auk þess 7 stunda-
kennarar. — Skólanefnd skipa: Hannes Jónsson, dýralæknir, Hallgrimur
Hallgrímsson, bókavörður, Hallbjörn Halldórsson, prentsmiðjustjóri.
Vatnsnefndin
í Reykjavik hefir á hendi umsjón og stjórn vatnsveitunnar. — Hana
skipa nú: Borgarstjóri, Guðrún Jónasson, Hallgr. Benediktsson, Magnús
Kjaran, Ólafiu- Friðriksson.
Veðurstofan
á Skólavörðustíg 3, er opin kl. 8 árd. til kl. 7 síðd. — Fyrirspurnum
um veður svarað venjulega kl. 8%—12 árd. og kl. 3—7 síðd. — Veður-
fregnir og veðurspár eru gefnar út kvölds og morgna, og mánaðarritið:
Veðráttan, sem inenn gela gerst áskrifendur að. — Forstöðumaður er
ÞorkeU Þorkelsson. — Veðurfraeðingur er Jón liyþórsson.
Veganefndin í Reykjavík
hefir með höndum alla umsjón og framkvæindir á vegagerðum og við-
25