Eimreiðin - 01.01.1946, Side 21
EIMREIÐIN
Janúar—marz 1946 - LII. ár, 1. hefti
Við þjóðveginn.
28. febrúar 1946.
SAMNINGAR OG SJÁLFSTÆÐI.
Það hefur nýlega verið tilkynnt í blöðum landsins, að
síðustu leifar brezka flughersins hér séu á förum heim. Um
leið var þess getið, að Bretar vildu semja við íslendinga
um samvinnu í flugmálum. Hefur þetta fengið góðar undii-
tektir og mælzt vel fyrir. Raddir um að ekki megi semja
við Breta eða Bandaríkjamenn um nein þau mál, er snerti
stöðu vora í varna-, viðskipta- og samgöngukerfi hins vest-
i'æna heims framtíðarinnar, vegna þess að slíkt gæti reynzt
hmttulegt sjálfstæði þjóðarinnar, fá litla áheyrn. Sannast
að segja ber það ekki vott um umhyggju fyrir velferð hins
^ýstofnaða lýðveldis, sé reynt að gera tortryggileg í augum
tandsmanna vinveitt stórveldi, sem þeir hljóta að eiga
áfram margvísleg viðskipta- og stjórnmálaleg samskipti
viÖ. Þessi stórveldi urðu fyrst til að viðurkenna fullveldi
íslands. Og það mun þjóðinni aldrei gleymast.
Fátt er eins nauðsynlegt smáþjóð eins og að afla sér vel-
vildar og góðs álits voldugra grannþjóða. Og enginn skyldi
iáta sér til hugar koma, að mannalæti og merkilegheit,
hlöndúð getsökum, séu einhver sérstök sjálfstæðiseinkenni.
ÖUum landsmönnum má ljóst vera, að hjá því verður ekki
komizt að ganga frá mikilvægum atriðum um stöðu vora
°8' sambönd út á við. Þetta er verk, sem oss sjálfum ber
að inna af hendi. Sjálfstœöi íslands verður svo bezt tryggt,
að vér teljumst samningshæfir í milliríkjaviðskiptum. Ef
vér reynumst það ekki, eigum vér jafnan á hættu að verða
^kki kvaddir ráða, jafnvel í málum, sem oss varða miklu.
l