Eimreiðin - 01.01.1946, Síða 34
14
KJARVAL
eimreiðin
mæli. Mannsævin er svo einkennilegt málverk, og maður veit
aldrei, hvenær það er gott eða ekki gott, sem maður gerir, og
vertu nú sæll“.
„Jæja, vertu þá sæll, Kjarval, og fyrirgefðu ónæðið“.
„Vertu sæll, Vilhjálmur, og þakka þér fyrir ónæðið“.
Það er ekki alltaf gott að henda reiður á Kjarval og því, sem
liann segir. Hann kemur og fer. En við hittumst aftur á afmæl-
inu og eftir það. Kjarval hefur stundum sagt mér sitthvað í
gamni og alvöru um ævi sína og list, þó að hann sé reyndar að
jafnaði fátalaður um sjálfan sig.
Um Kjarval eru til margar sögur og margar þjóðflevgar. Allir
þekkja söguna um málverkið af Sterling í þokunni, eða söguna
af dæminu, sem Kjarval lagði fyrir ágætan stærðfræðing: Ef
Gullfoss fer úr höfninni klukkan 8 og siglir sjö mílur í SV og
svo fimm mílur í NA og Lagarfoss fer klukkan 10 og siglir sjö
mílur í SA, hvað lieitir þá kokkurinn á Selfossi? Sumar þessar
sögur eru uppspuni og sumar lítilsvirði, en aðrar lýsa manninum
vel. Kjarval er orðinn þjóðsaga fyrir löngu. Það sýnir vinsa;ldir
lians og sérkennileika. Fólkinu finnst, að listamenn eigi ekki að
vera eins og aðrir nienn. Það liefur komið fyrir merka menn,
að þeir liafa bókstaflega orðið að eintómri þjóðsögu. Sæmundur
fróði var á sínum tíma mikill lærdómsmaður og stjórnmála-
maður, en liann er nú varla til öðruvísi en sem þjóðsaga.
Kjarval gengur hér um göturnar líkt og Sókrates í Aþenu
forðum. Hann er ræðinn eða þegjandalegur eftir því sem í hann
dettur. Hann talar í samhengi eða ekki samhengi, eftir því sem
lionum býður við að liorfa. Hann gerir það sem honum þóknast,
eða gerir ekki neitt, ef honum líkar það betur. Eða hann leggur
á sig erfið ferðalög og langa vinnudaga fyrir list sína. Hann
liefur sitt lögmál í sjálfum sér. Og við liinir beygjum okkur
undir það. Það er alveg óbætt. Kjarval hefur aldrei lagt illt
til nokkurs manns. Hann er vinur vina sinna og einskis óvinur.
En hann hefur sínar ákveðnu skoðanir á mörgu og mörgum.
Hann ræður því sjálfur, eins og rétt er, hvort hann lætur þær
í Ijós eða ekki. Hann er óáleitinn og kurteis. Hann er kýminn
inn við beinið eins og sannur Austfirðingur. Flest bispurslaus-
asta kýmni þessa lands er ættuð frá Austfjörðum. Kjarval á
líka það aðalsmerki góðrar kýmni, að geta kýmt að sjálfum sér.