Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1946, Page 35

Eimreiðin - 01.01.1946, Page 35
EIMREIÐIN KJARVAL 15 Við liöfum stundum fundið það, að sumar myndir, sem Kjarval málaði um eitt skeið ævi sinnar, eru máske svona dálítið á Parti. En Kjarval er svo kurteis, að hann talar aldrei um það við eigendur myndanna, eða um það, livort þær hangi rétt á veggnum, ef slíkt skiptir þá einhverju máli. Kjarval kom einu sinni með mynd til vinar síns, setti liana á horð fyrir framan hann og sagði: „Af liverju er þessi mynd?“ Vinurinn velti þessu lengi fyrir sér vandræðalega og sagði svo: „Ég held, að hún sé af tilverunni áður en sköpunarverkið byrjaði“. „0, verra gat það verið“, sagði Ivjarval, „og þú mátt eiga myndina“. Öðru sinni hýsti Kjarval af góðsemi sinni vandræðamann. Eitt sinn bauð sá náuugi til veizlu í híbýlum Kjarvals og gaf gestum sínum að skilnaði ýmsar myndir úr vinnustofu hans. Þegar Kjarval k°ni lieim á eftir og sá hvað orðið var, sagði hann þetta citt: «Mikill liöfðingi ert þú!“ Það er ekki hægt að tala urn Kjarval, Sv° að með sannfræðum sé, og ganga fram hjá þessum þáttum 1 fari lians, þó að þeir þyki einkennilegir á borgaralega alin. En sannleikurinn er samt sá, að þetta eru minni þætlir í eðli Kjarvals en margir halda. Þeir, sem ekki þekkja liann, vita stundum ekki, livar þjóðsöguna þrýtur og sagan hefst. Jóhannes Kjarval er ^versdagsgæfur maður og umgengnislipur, gentleinaður, örlátur, nnldur og góðgj arn. Hann gengur um göturnar og talar — og ferð- ast um fjöll og firnindi og málar. Hann dregur sig inn í einver- nna og hugsar og yrkir. Hann er annað og meira en þjóðsaga. Hann er einn skemmtilegasti og merkilegasti veruleiki í ís- lenzku þjóðlífi seinustu ára. Hanu er einn af þeim, sem liefur skapað nýja list í þessu landi. Hann hefur búið til ný sjónarmið a 'slcnzkri náttúru. Hann hefur uppgötvað nýja liti og línur í lslenzku landslagi. Hann liefur séð nýja drætti í íslenzkum audlitum. Kjarval hneigðist snemma að list. Hann er fæddur og uppalinn 1 svipmiklum og litríkum sveitum, fæddur í Skaftafellssýslu, í Éfri-Ey í Meðallandi, en alinn upp frá því liann var fjögra ára 1 ^orgarfirði eystra, í Geitavík. Faðir hans var Sveinn Ingimund- ‘lrs°u bóndi, en Karitas, móðir hans, var af Sverrisens ætt, al- unnri mtt. Kjarval fór að yrkja, þegar hann var innan við Krmingu, hann orti um skipin á firðinum og um óveðrið og teiknaði um leið. Kjarval gerðist ungur sjómaður og fór á
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.