Eimreiðin - 01.01.1946, Page 56
36
METNAÐUR OG GORGEIR
EIMREIÐIN
Orð liins merka bónda festust í huga mínum. Mér fannst þetta
vel sagt og rétt.
Og ég er viss um það, að ef þjóðin liefði vit og hamingju til
þess að hugsa og vilja eins og þessi bóndi, —- veldi sér öSIinga
til forustu og forráða, — þá væri sjálfstæði lands vors vel borgið.
Þorsteinn Jónsson.
Fyrsta förin til tunglsins innan fjögra ára?
Franska flugmálaráðuneytið hefur nýlega leyft tilraunir í milli-
hnattaflugi. Stærðfræðingur nokkur, að nafni Alexander Ananoff,
stofnaði síðastliðið sumar hnattsiglingadeild í Flugklúbbum frönsku
háskólanna (Aero-Clubs Universitaires et scholairs de France) og
býst við, að innan fjögra ára muni hann verða búinn að koma á til-
raunaflugi til tunglsins í svifsprengjuvélum (rockets).
Hnattsiglingadeild Ananoffs vinnur að sex eftirfarandi atriðum:
1) að nota atómorkuna til að knýja vélar, 2) að búa til atómorku-
vélar, 3) að rannsaka styrkleika málma til vélanotkunar í millihnatta-
ferðum, 4) að smíða svifsprengjuvél til millihnattaferða, 5) að rann-
saka gufuhvolfið og geiminn fyrir utan það, 6) að rannsaka flugsigl-
ingaskilyrði geimsins.
Ananoff gerir ráð fyrir, að rannsóknir þessar taki 15 ár. En innan
fjögra ára á fyrsta tilraunavélin að vera tilbúin. Hún verður af V2-
gerð og knúin atómorku. Ananoff hyggst þreifa sig áfram stig af
stigi. Meðal annars þarf að rannsaka, hvernig umhorfs sé fyrir ofan
háloftin (stratosferuna) eða í ionosferunni og síðan úti í sjálfum
geimnum, utan við allt gufuhvolf. Það verður hættulegt að hafa glugga
í millihnattavélinni, vegna geimgeislanna, og hún verður að vera i
tvöföldu hylki með „ozone“-lagi á milli, til verndar. Þeir, sem í vélinni
verða, munu gera athuganir sínar gegnum sjónpípur (periscopes). I
tunglinu er hvorki gufuhvolf né gróður. En gera má ráð fyrir málm-
um þar. Og fróðlegt mun að rannsaka yfirborð mána, ekki sízt þa
hliðina, sem frá jörðu snýr. En reikistjarnan Marz hefur gufuhvolf
og einhvern gróður. Venus mun einnig hafa gufuhvolf, en Ananoff
telur hana of nálægt sólu til þess að þai' geti þróazt líf.
Á atómorkuvél, sem fer um 800 km. á sekúndu, á að vera hægt að
komast til Marz á 49 klukkustundum og 20 mínútum, að áliti Ananoffs.
Ekki mundi vélin verða látin lenda, minnsta kosti ekki í fyrstu fero-
inni. Þeir, sem vildu staðnæmast á Marz, yrðu að kasta sér út í fall-
hlíf eftir að komið væri inn í gufuhvolf þeirrar reikistjörnu.
Nú er að sjá hvernig máli þessu reiðir af í framkvæmd.