Eimreiðin - 01.01.1946, Blaðsíða 94
eimreiðin
■ ÚR BÓKAFLÓÐINU 1945.
Landsbókasafnið hefur nú tekið'
upp þann hátt að gefa út Árhók í
stað Ritaukaskrárinnar. Þetta er góð
nýbreytni, sem mikils má vænta af
fyrir íslenzka bókfræði. En þegar
• erlenda ritaukaskráin fellur niður,
þarf jafnframt að sjá notendum
safnsins fyrir einhverri annarri liand-
liægri aðferð til þess að fylgjast með
nýjungum í safninu. Samkvæmt
hókaskránni í þessu riti telst mér
svo til, að árið 1944 hafi komið hér
út um 650 prentuð rit. Þetta er það
margnefnda bókaflóð. Þess er þó að
gæta, að af þessu eru 177 hlöð og
tímarit og að auki talsvért af skýrsl-
um og skrám. Ég gæti trúað því, að
bækur, sem menn mundu kalla svo
í daglegu tali, væru 350 til 400, eða
sem svarar nálægt því einni l)ók á
dag. Það er mikið móts við það, sein
áður var. En einkennilegast er,
livernig þessar bækur skiptast eða
misskiptast milli flokka. Sum við-
fang8efni og fræðigreinar verða nær
alveg útundan í íslenzkum hókinennt-
um. Mest her enn á kvæðuin og
sögufróðleik, 32 ljóðabækur koma út
og 41 bók um sagnfræði, landafræði,
ferðasögur og ævisögur, og auk þess
14 slíkar hækur þýddar; 18 islenzk-
ar skáldsögur komu út, og svo kein-
ur það furðulega, 75 þýddar skáld-
-sögur á einu ári.
Ég lief ekki handbærar ennþá
samskonar tölur um árið 1945. En
það lætur nærri, að á því ári liafi
Isafold gefið út rúmlega 50 bækur,
Helgafell 36 bækur fyrir jól og fleiri,
ef timarit og umhoðshækur eru tald-
ar ineð. Norðri hefur gefið út 15
hækur og Bókfell aðrar 15, GuSjón
Ó. GuSjónsson 10 og Leiftur álíka
margar. Um Akureyrarútgáfurnar hef
ég ekki getað náð í tölur. En þetta
er ærin útgáfa, þegar hér eru einstök
forlög, sem gefa út eina hók á viku
og önnur, sem gefa út ineira en sem
svarar einni bók á mánuði. Sum for-
lögin hafa nú þegar boðað mun meiri
framkvæmdir á árinu 1946. Nú á
þetta að vísu ekki allt sainan nema
nafnið. Sumt er smælki, sumt eru
gríðarmikil rit, sumt smáprent og
pésar, sumt skrautútgáfur.
Gleggri huginynd um bókaútgáf-
una má fá með athugun á bókaverð-
inu. Ég hef athugað hóklilöðuverð,
útsöluverð, á nálægt 200 íslenzkum
hókuni fyrir seinustu jól. Þær kosta
rúinlega 7000 kr. Meðalverð á þess-
um hókuni óbundnum, þar sein þær
eru til þannig, er rúml. 35 kr. F.g er
ekki viss uin, að það geti með sann-
girni talizt liátt verð, iniðað við aðra
dýrtíð í landinu, þótt innanúm og
samanvið séu þarna hækur ósann-
gjarnlega dýrar. Verðið á hundnum
hókiim er aftur á móti allhátt. Meðal-