Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1952, Side 22

Eimreiðin - 01.01.1952, Side 22
Swez-ólwv'c) utrmn. Undanfarið hafa staðið miklar deilur um Suez-skurðinn, milli Breta og Egypta, og er þeim enganveginn lokið. Skurð- urinn liggur um flatlenda sandeyðimörk Austur-Egyptalands. Svo litið ber á honum af landi, að hann sést ekki úr tvö til þrjú hundruð feta fjarlægð frá skurðbakkanum. Það eru nú nálega 83 ár síðan skurðurinn var tekinn í notkun, og nú er hann einhver mikilvægasta samgönguleið sem til er á hnettinum. Frakkinn Ferdinand de Lesseps, sem stóð fyrir framkvæmd verksins, bjóst aldrei við að fleiri en nokkur hundruð skip mundu fara hann árlega, til þess að komast á milli Evrópu, Afríku og Asíu. En umferðin um skurðinn hefur orðið miklu meiri en honum datt nokkru sinni í hug. Árið sem leið fóru 11700 skip um hann, sem fluttu meir en 72 milljónir tonna af vörum og greiddu um 1280 millj. króna fyrir leyfi til að fara um hann. En það er 6200 skipum og 43 millj. tonna meira en fór um Panamaskurðinn á sama tíma. Þegar Egyptar sögðu upp samningnum frá 1936 við Breta á síðastliðnu ári, varð umhverfi Suez-skurðsins orrustusvæði. Það er ekki neitt smáatriði að ráða yfir skurðinum og um- ferðinni þar. Það er 5100 enskum mílum styttri leið á milli London og Bombay á Indlandi, þegar farið er um Suez- skurðinn en ef farið er suður fyrir Afríku. Fé það, sem sparast hefur við olíuflutni'nga um Suez-skurðinn frá Persa- flóa og Saudi-Arabíu, í stað þess að þurfa að flytja olíuna suður fyrir Afríku, er meira en öll sú upphæð, sem fór til að grafa skurðinn. Skurðurinn var opnaður til afnota 17. nóvember 1869. Eugénie Frakklandsdrottning fór á lystisnekkju sinni, L’Aigle, í fararbroddi og opnaði hann. Bretar voru í fyrstu ófúsir á að styðja Lesseps og fyrirtæki hans. En Disraeli, forsætis- ráðherra hennar hátignar Victoríu Bretadrottningar, sá fljótt,

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.