Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1956, Page 57

Eimreiðin - 01.01.1956, Page 57
ÚR FREMRIBYGGÐ OG TUNGUSVFJ I' 45 Vl® gluggann: Ég held liún sé farin að síga! Og var þá tilraun- 'uni tafarlaust hætt. — Ég var ekki hjátrúarfullur í æsku, llræðsla við tröll, álfa og forynjur náði aldrei tökum á mér, eg trúði algerlega foreldrum mínum, er sögðu mér, að slíkir °vættir væru hugarburður einn og heimska. Þó var ég myrk- lælinn, einkum eftir að ég hafði hlustað á draugasögur, en oft 'ar mikið sagt af þeim í baðstofunni. Nokkrum sinnum sá ég t'udarlegum verum bregða fyrir, en aldrei, þegar ég var myrk- ltelinn. Auðvitað get ég ekki gert mér grein fyrir, hvað þetta hefur verið. Eitt sinn sá ég prest í rauðri hempu líða fyrir §lugga, er ég sat við. Ég var ekkert hræddur við hann, þetta Var ungur maður, rjóður í kinnum og fallegur, hann leit ekki a tnig, bara leið áfram upp sundið milli bæjarins og hlöðunn- ar °g hvarf. Þetta var um messutíma. Ég hljóp út og gægðist jnn 1 kirkjuna. Þar stóð pabbi og var að messa í sinni svörtu lentpu. Ég var ekkert hræddur við þetta, en það festist í huga nnnum, — óafmáanleg mynd. — Löngu seinna var ég að skoða altaristöflu úr gömlu kirkjunni, sem rifin var. Það var tré- jPjald, á það máluð mynd af Kristi í rauðum, dragsíðum — Þar var myndin, er ég hafði séð líða upp bæjar- sundið. I bernsku var faðir minn í huga mínum algerlega fullkom- 111 vera, hann stóð svo langt framar öllunt öðrum mönnum, enginn samjöfnuður gat komið til greina. Hann vissi allt, ^at allt. Honum tókst ætíð að svara barnslegum spurning- !lm niínum fullnægjandi, og ekki var til það vandamál, er ann fengi eigi leyst. Hann var, stundum, nokkuð strangur refsing hans hörð, en hin næma dómgreind barnsins ann astíð, að hann var réttlátur og hegningin verðskulduð. m þetta {tróaðist í huga mínurn takmarkalaust traust til ^ans; ég gat verið alveg viss urn það, að hann myndi aldrei e!ta ntig órétti. Hann beitti aldrei refsingu að órannsökuðu mali og refsaði aldrei fyrir óviljaverk. Hann hrósaði sjald- nteð orðum, en ég sá það ætíð á svip hans, er honum lík- 1 vel, 0g það var mér nóg. Hann var stöðugt að fræða okk- ’ hl dæmis á meðan við sátum til borðs; ltanh var afbragðs- ö°ður kennari, líkleg þó of kröfuharður stundum, þegar urn Unglinga var að ræða, er hætti við skaðlegri minnimáttar-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.