Eimreiðin - 01.01.1956, Qupperneq 90
Til lesendaitita
Eins og skýrt var frá í síðasta hefti Eimreiðarinnar hafa orðið
eigendaskipti að henni, þar eð Félag íslenzkra rithöfnnda gerðist
eigandi hennar um næstliðin áramót.
Það varð að ráði, þegar umræður hófust í Félagi íslenzkra rit-
höfunda snemma á árinu 1955 um að leita þess við þáverandi
eiganda Eimreiðarinnar og ritstjóra, hr. Svein Sigurðsson, að festa
kaup á ritinu, að heppilegast yrði þannig fyrir þeim málum séð,
ef kaup tækjust, að um útgáfu þessa yrði stofnað meðal meðlima
rithöfundafélagsins hlutafélag, er síðan gengi inn í kaupin. Þeg'
ar sýnt varð, að kaup gætu tekizt, var stofnað hlutafélagið
Eimreiðin h.i., og var hlutverk þess tiltekið í lögum félagsins
að kaupa Eimreiðina og sjá um rekstur hennar og útgáfu. AH*1
stofnendur voru félagar í Félagi íslenzkra rithöfunda. Auk þess
átti félagið sjálft hlut í fyrirtækinu.
Stjórn félagsins skipa: Jakob Thorarensen, Sigurjón Jónsson
og Helgi Sæmundsson, en varameðstjórnandi er Indriði Indriða-
son. Stjórnin réði ritstjóra, ritnefnd og afgreiðslumann. Gnð
mundur Gíslason Hagalín var ráðinn ritstjóri, en í ritnefnd P°J'
steinn Jónsson rithöfundur og Helgi Sæmundsson ritstjóri. Af'
greiðslumaður var ráðinn Indriði Indriðason.
Sökurn síhækkandi verðlags og aukins kostnaðar við útgálú
ritsins vegna eigendaskipta varð ekki hjá því komizt að hækka
verð þess. Kostar nú árgangurinn 65 krónur. Nokkuð er til af
eldri árgöngum Eimreiðarinnar, allt frá 1918, en þó eru upp'
seld stök hefti úr sumum árgöngum. Síðasti 31 árgangur >'lts'
ins fæst í heilu lagi (frá og með 1925), svo og stakir árgang31 •
Utanáskrift afgreiðslumanns er: Stórholt 17, pósthólf 272.
Stjórn félagsins og ritstjórn eru einhuga og sammála uro, að
það viðhorf skuli mestu ráða um efni ritsins og innihald, sel11
mótaði stelnu þess í upphafi. Eimreiðin vill vera enn sem f)’rl
vettvangur fagurfræðilegra bókmennta samtíðarinnar. í henni