Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1975, Page 120

Eimreiðin - 01.07.1975, Page 120
EIMREIÐIN Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur fæddist í Reykjavík 27. september 1947. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1967 og lauk laga- prófi frá Háskóla Islands 1973. Hann er nú lögfræðingur í Reykjavík. Jón Hákon Magnússon fréttamaður fæddist í Reykjavík 12. september 1941. Hann stundaði nám í stjórnmálafræðum og blaðamennsku við Macalester College 1 St. Paul-borg í Minnesota í Bandaríkjunum 1960—1964 og lauk þaðan B.A.- prófi 1964. Síðan hefur Jón Hákon einkum starfað við blaðamennsku og er nú fréttamaður hjá Sjónvarpinu. Jónas H. Haralz bankastjóri fæddist í Reykjavík 6. október 1919. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1938 og lauk magisterprófi í hagfræði, stjórnmálafræðum og heimspeki frá Stokkhólmsháskóla 1944. Hann var hag- fræðingur hjá Alþjóðabankanum í Washington árin 1950—1957, en hefur ann- ars starfað á Islandi. Jónas er bankastjóri Landsbanka íslands. Hann hefur ritað fjölmargar greinar í blöð og tímarit. Jónas Kristjánsson ritstjóri fæddist í Reykjavík 5. febrúar 1940. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1959, lauk fyrrihlutaprófi í mannfé- lagsfræðum frá Frjálsa háskólanum í Berlínarborg 1961 og B.A.prófi í sögu frá Háskóla íslands 1966. Hann varð blaðamaður á Tímanum 1961 og fréttastjóri 1963. Jónas var ritstjóri Vísis 1967—1975, en er nú ritstjóri Dagblaðsins. Jónas Svafár skáld fæddist í Reykjavík 8. september 1925. Hann hefur gefið út nokkrar ljóðabækur. Karl Kvaran listmálari fæddist á Borðeyri 17. nóvember 1924. Hann stundaði nám í Handíða- og myndlistaskólanum í Reykjavík 1941—1945 og í Listahá- skólanum í Kaupmannahöfn og öðrum listaskólum 1945—1949. Karl er list- málari í Reykjavík. Kristján Árnason fornfræðingur fæddist í Reykjavík 27. september 1934. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1953, lauk B.A.prófi í fornmálum frá Háskóla íslands og stundaði síðan framhaldsnám í fornbók- menntum og heimspeki við háskóla í Þýzkalandi og Sviss. Kristján er kennari við Menntaskólann á Laugarvatni og kennir einnig bókmenntir við Háskóla Is- lands. Kristján Davíðsson listmálari fæddist í Reykjavík 28. júlí 1917. Hann stund- aði nám í myndlist hjá Finni Jónssyni og Jóhanni Briem í Reykjavík og í Barnes- stofnuninni í Bandaríkjunum 1945—1947. Kristján er listmálari í Reykjavík. Kristján Karlsson bókmenntafræðingur fæddist í Eyvík á Tjörnesi 26. janúar 1922. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1942, lauk B.A.prófi í ensku frá Berkeleyháskóla í Kaliforníu 1945 og M.A.prófi í samanburðarbók- menntum frá Kólumbíuháskóla í New York 1946. Hann var bókavörður Fiske- safns í íþöku í New York 1948—1952, ritstjóri Nýs Helgafells 1956—1959 og hefur einkum starfað við bókaútgáfu. Kristján hefur ritað fjölmargt um bók- menntir, auk þess sem ljóð og smásögur hafa birzt eftir hann. 296
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.