Ægir

Årgang

Ægir - 01.05.1930, Side 22

Ægir - 01.05.1930, Side 22
112 ÆGIR Stýrimannaskólinn 40 ára og þrítugasta skólastjórnarár Páls Halldórssonar. í Stýrimannskólanum, sem sai*l var upp 29. april, má á þessu ári minnast tvö- falds afmælis. Skólinn sjálfur er fertug'- ur og' skólastjórinn Páll Halldórsson hef- ir liaft á hendi stjórn skólans í 30 ár. Skólinn var stofnaður með lögum 22. maí 1890 og tók til starfa haustið 1891 og var hinn núverandi skólastjóri einn af fyrstu nemendunum, en lauk síðan prófi erlendis. Skólinn var stofnaður mest fvr- ir forgöngu Markúsar Bjarnasonar, sem varð fvrsti forstöðumaður hans og Geirs Zoega útgerðarmanns, en Kiríkur Briem hafði áður veitt hér tilsögn í sjómanna- fræðum og hvatti einnig til skólastofnun- arinnar og var síðan lengi prófdómari þar, en síðan lengstum jieir H. Hafliða- son og Sveinbj. Egilson. Helstu kennar- ar skólans, aðrir en P. H. hafa verið Magnús Magnússon og' eftir hann Guðm. lvristjánsson, sem kom að skólanum skömmu eflir að liann hafði lokið prófi erlendis og kennir þar enn, afbragðs kennari og' mjög vel látinn af lærisvein- um. Upp undir þúsund nemendur liafa útskrifast úr skólanum og hefur hann haft mikið gildi fyrir íslensku sjómanna- stéttina, sem er einhver hin duglegasta og hest mannaða í Evrópu. Páll Halldórsson, sem nú á 30 ára skólastjórnarafmæli, er kunnur öllum þeim, sem hér fást við sjómensku, enda eru svo að segja allir þeir islenskir sjó- menn, sem prófi hafa lokið, lærisveinar Iians. Hann hefur verið kennari við stýri- mannaskólann frá 1897, er maður stór- lega fróður i fræðigrein sinni og' Iiefur skrifað stórt ril um siglingafræði, sem notað er við kenslu og' gert liefur þessa fræðigrein alinnlenda. Áður voru notað- ar danskar bækur og verkefni við stýri- mannpróf voru meira að segja liöfð á dönsku og' prófdómarar voru danskir. Auk hinnar stóru stýrimannafræði, hefir Páll skólastjóri samið kenslubók fyrir þá er smáskipapróf taka, einkar henluga hók og nauðsynlega. Þ. 29. april útskrifuðust 4 úr far- mannadeild og 17 úr fiskimannadeild; alt efnispiltar, sem með framkomu sinni og frammistöðu, gerðu skólanum sóma, á þessu merkisári lians. Nöfn þeirra og einkunnir er þeir lilutu eru svo: Farmannadeild: Páll Þorbjörnsson . . . 152 st. Guðhj. Bjarnason . . . 145 - .Tón Austmar ... 144 — Þórir Ólafsson . .. 131 — Fis ki mannadeild: Sig. Guðjónsson . . . 122 st. Þorsteinn Eyjólfsson . . . 119 — Njáll Þórðarson . . . 116 Guðmundur Jónsson . . . 113 Árni Sigurðsson . . . 110 Axel Sveinhjarnarson . .. 109 — Sveinn Valdimarsson . .. 107 Bjarni Magnússon . .. 103 Eggert Gislason . .. 100 Finnhogi Kristjánsson ... 98 Mag'nús Einarsson ... 97 - Magnús Haraldsson . . . 96 Guðjón Ólafsson ... 92 Ásgeir B. Þorsteinsson ... 85 — Matth. Jochumsson . . . 82 Friðrik Stefánsson .... 80 Próf í farmannadeild í giifr wélafræði: Páll Þorbjörnsson ... 12 st. Jón Austmar ... 11 Þórir Ólafsson . . . 10 Guðbj. Bjarnason . . . 9 - Páll Þorbjörnsson las vi'ð skólann að eins einn vetur.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.