Ægir

Volume

Ægir - 01.05.1930, Page 33

Ægir - 01.05.1930, Page 33
Æ G I R 123 Enn sem komið er, er enginn almennur eða opinber sjóður af þessu tæi til hér á landi, því að hinn almenni ellistyrktar- sjóður, sem stofnaður er með lögum nr. 17, 19. júlí 1909, er ekki fremur ætlaður sjómönnum en öðrum, og styrkurinn, sem veita má, af mjög skornum skamti (shr. nefnd lög og breytingar á þeim 20. okt. 1917), og um einkasjóði til styrktar uppgjafa sjómönnum hefir nefndin ekki g'etað fengið vitneskju nema um tvo, sem báðir eru smáir (formannasjóður ísfirð- inga, stofnaður laust fyrir 1900, og mun nú vera ca. 1500 kr., og styrktarsjóður sjómanna í Grindavik, stofnaður um 1900, uú ca. 400 kr.). Nefndinni er fullljóst, að hér er um mikið mannúðar- og menningarmál að ræða. Uppgjafa sjómenn, sem að vísu eru færir um að stunda létta vinnu, standa að jafnaði illa að vígi með að fá hana, og hin- mn ellihrumu, sem enga eiga að, og' eru sjálfir öreigar, eru öll sund lokuð, nema sveitarsjóðm’inn. Nú er þess varla að vænta, að hið opin- bera, sem hefir svo miki'ð á sinni könnu, livað tryggingar snertir, inuni geta tekið þetta mál í sínar liendur í næstu framtíð, °S telur nefndin því Fiskifélaginu skvld- ast að beita sér fvrir einliverjum fram- kvæmdum i þessa átt, þvi að lítil líkindi eru til þess, að einstakir menn verði al- mennt til þess, þó að dæmi þau, sem nefnd eru hér að framan, séu vel þess verð, að þau séu tekin til eftirbreytni. Líklegustu leiðina telur nefndin þá, sem felst i eftirfarandi tillögu: „Fiskiþingið skorar á stjórn Fiskifé- lagsins, að fela erindrekum síhum að breyfa málinu í veiðistöðvum eða annars- staðar, þar sem það á við, hver í sínum fjórðungi, og skýra þýðingu þess fyrir mönnum og hvetja þá til framkvæmda, sem og að leiðbeina þeim við stofnun sjóða, ef til þess kæmi. Einnig telur þingið rétt, að uppkast að skipulagsskrá, svipað því sem getið er um hér að ofan, fyrir slíka sjóði, yrði prentað og útbýtt meðal sjómanna. Tillagan samþ. með 11 atkv. Fiskiþingið, 11. febrúar 1930. Á/'/ii (í. Þóroddsson. Iijnrni Sæmundsson. Kristján Jórisson. Þungi kvintals. Þungi kvintals hefur fvrir nokkru ver- ið samræmdur á Spáni. 1 kvintal —- 50 kiló í Bilbao, Vigo, Sant- ander, Kartagcna og Malagá, Barcelona, Tarragona. 60 kilo i Portugal. 1 kassi — 45 kilo i Havana og Buenos Aires. 58 kilo i Rio de Janeiro. 1 þýskt pund = 0,5 kilo. 1 enskt pund = 0.45 kio. Kauptaxti Dagsbrúnar. Hér með tilkynnist, að verkamannafé- lagið Dagsbrún samþykkti á síðasta fundi sínum svobljóðandi ákvæði um kauptaxta og vinnutima, er ganga i gildi að morgni bins 14. maí: Félagið ákveður að uæturvinnubannið baldi áfram á þann hátt, að vinna byrji kl. 7 að morgni og sé hætt kl. 10 að kvöldi. Dagvinnutimi sé frá kl. 7 að morgni til 6 að kvöldi. Frá þeim ellefu stundum dregsl ein stund til miðdegisverðar, en fyr- ir tvo kaffihálftíma, kl. 9 árdcgis og kl. 3 siðdegis, er ekki dreginn frá tími. Dag- vinnukaupið kr. 1,36 um tímann, daglaun- in kr. 13,60.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.