Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1930, Blaðsíða 4

Ægir - 01.06.1930, Blaðsíða 4
126 ÆGIR byrja örðugleikar fyrst að afloknu prófi og á millilandaskipum, þar sem allrar reglu er gætt, er lif þess stýrimanns ekki öfundsvert, sem ekki kann öll þau verk- leg störf, sem hann skipar undirmönn- um sínum að gera og þar verður aldrei auðið að leyna fáfræði í þvi, sem varðar daglegan rekstur skipsins. Þegar 10 menn eru lögskráðir hjálög- reglustjórum eða hreppstjórum, á mótor- bát hér, fá þeir sjóferðabók og er þeir fara frá skipi, eru þeir afskráðir og það ritað í bókina. þessar tvær innfærslur eiga að sanna, að eigandi bókarinnar hafi verið liðsmaður á bátnum og fáum mun detta í hug, er í bókina lita, að um annað en veru á skipi á sjóferðum, sé að ræða. Þetta er þó stundum eigi svo, þegar að eins helmingur hinna lögskráðu er allan tímann á hátnum, við veiðar og skipsstörf, en hinn helmingur allan tímann á landi við móttöku og hirðingu aflans. Sá helmingur á því eigi kost á að læra sjó, séu það menn, sem ekki hafa stundað hann fyr og hafa ætlað sér að búa sig undir og læra að fara með skip, taka siðan próf i siglingafræði og gerast yfirmenn. Er þessir landmenn eiga að sanna siglingatlma sinn með því að sýna bækurnar, mun fáa, sem ekki þekkja til, gruna, að ólag sé hér á ferð og siglingatími mannsins er tekinn góður og gildur, hvort heldur er á stýri- mannaskóla eða til sjóvinnu, skýri mað- urinn eigi satt og rétt frá veru á landi af þeim tíma, sem sjóferðabókin telur hann starfandi á skipsfjöl. Þessi aðferð til að öðlast réttindi er bághorin mjög og verst fyrir þann, sem er eigandi sjóferðabókar, sem telur land- vinnu hið sama og hásetavinnu á skipi. Þetta mun vera orðið algengt hér um slóðir og má telja það líklegt, að fiski- menn og unglingar, sem ætla sér að byrja að stunda sjó, álíti að ekkert sé við þetta að athuga. II. í öllum löndum, sem annaðhvort hafa skip i förum eða á veiðum, er það föst regla og álitið sjálfsagt, að kaup sjó- manns hækki smátt og smátt eftir því sem hann er lengur á skipum og eftir stigi þvi, sem hann með því kemst á, en kaupið verður þó aldrei hærra en fullgilds háseta eftir gildandi reglum, þar til próf er tekið og hinn fyrverandi há- seti gerist stýrimaður, þá verður launa- flokkur annar. Þessa skiptingu skipsmanna mætti nefna á voru máli: Drengur (byrjunar- stig), viðvaningur (annað stig) og full- gildur liáseti (þriðja stig); á ensku »boy«, »ordinary seamana og »able seaman«; er alment álitið, að sá sem unnið hefur á skipi í þrjú ár, sé fær um að ráðast á skip, sem fullgildur háseti, þó er þetta ekki beinlínis ákveðið, eins og t. d. við ýmsan iðnað, þvi sé háseti duglegur maður og hafi haft áhuga fyrir að læra það, sem krafizt er af fullgildum háseta, getur hann ráðist fullgildur háseti á skip, treysti hann sjálfum sér til að inna há- setastörf af hendi, enda þótt siglingatími hans sé slyttri en þrjú ár. Flestir skipstjórar, sem nokkuð hugsa um skip sitt og skipshöfn, álíta það sjálf- sagl, að unglingar og drengir á skipun- um, læri og eigi kost á að læra þá skips- vinnu, sem ýtir þeim áleiðis í lifinu og eykur öryggi skips og skipshafnar áhaf- inu. Góðir stýrimenn sjá um þetta fyrir skipstjórans liönd og láta unglingana að- stoða háseta við ýms dagleg störf og er furða, hve fljótt drengir læra að þekkja hinn fasta og lausa reiða, þótt marg- brotinn virðist vera.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.