Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1930, Blaðsíða 12

Ægir - 01.06.1930, Blaðsíða 12
134 ÆGIR Alþjóðafélag slysavarnafélaga. í Frakklandi eru mörg og merkileg slysavarnafélög og hjálparsveitir. Stærst mun þó vera slysavarnafélag sjófarenda og brunaliðsmanna. Hinn 18. marz s. 1. héldu þessi lands- félög ársfund sinn og til hans hafði verið boðið fulltrúum frá ýmsum löndum,þar á meðal Noregi, Sviþjóð, Finnlandi, Pól- landi og Englandi o. s. frv. Fulltrúum erlendra ríkja var sérstak- lega boðið sökum þess, að Frakkar vildu heyra undirtektir þeirra um að stofnað yrði alþjóðaslysavarnarfélag. Alþjóðafélög eru áður kunn, sem hafa ákveðna stefnu og takmark að keppa að til heilla mannkyninu, svo sem Good- templarafálag, Rauðakrossfélag o. s. frv., en þetta mun vera í fyrsta sinni sem til tals hefur komið að mynda allsherjar- félag til varnar slysum; og er það eng- um efa bundið. að það mundi verða til að efla bróðurhug milli allra þeirra þjóða, er í það samband ganga, ef úr framkvæmdum verður. Á fundi þessum hnigu ræður manna i þá átt, að þetta mundi vel framkvæm- anlegt og mjög æskilegt. Frakkar stungu upp á þvi, að árlega yrði skipt um stjórn þannig, að hún yrði skipuð á víxl mönnum frá öllum þeim löndum er í sambandið ganga og aðsetursstaður og skrifstofa félagsins yrði líka árlega silt í hverju landi. mundi það verða til þess að auka þekkingu félaganna á stysahætt- unni og þá lika frekara ráðin bót á þvi, sem nauðsynlegt væri að gera til hjálpar hverju landi fyrir sig. Þótti fundarmönnum þetta góð tillaga, en þó komu fram óskir erlendra full- trúa um það á fundinum, að aðalstjórn eða yfirstjórn yrði kosin, sem hefði fast aðsetur i einhverju landi og bentu sér- staklega á París sem heppilegan stað fyrir aðalstjórnina, vegna legu sinnar og þess mikla ferðamannastraum er þangað sækir árlega. Frakkar tóku þessum tillögum mjög vel og buðust til að hafa á hendi aðal- starfið, en landsfélag Frakka bauð bús- rúm fyrir skrifstofur yfirstjórnarinnar í byggingu sinni Rue Lacroix i París. Jafn- framt bauð landsfélagið rúm i mánaðar- riti sínu »Le Devoir« fyrir alþjóðarit- gerðir um slysavarnir. Tímaritþetta hefur verið gefiðút í Paris siðan um aldamót og er mjög víðlesið. Þá var rætt um það, að æskilegt væri að ritgerðir þessar yrðu prentaðar á þremur tungumálum t. d. frönsku, ensku og spönsku. Vegna aukins kostnaðar við útgáfu rits þessa, var það þó eigi samþykkt á fundi þessum, en rétt þótti, að þessi þrjú tungumál yrðu notuð svo fljótt sem því yrði viðkomið. Fundinum þótti hæfilegt að slysavarna- félög hvers lands er gangi í alþjóðafé- lagið, greiddu árlega 1000 franka sem til- lag til alþjóðafélagsins. Þetta er í aðal- dráttum þær uppástungur, erframkomu á fundi þessum og sem fulllrúar og fé- lagsmenn urðu sammála um að halda fram, hver í sinu landi. Rjörgunarfélagshugmyndin er byggð á kærleika til allra manna og einmitt af þeirri ástæðu geta menn búist við góð- um árangri af starfsemi þessari og vænst þess að hugmyndin um alþjóðasamstarf i slysavörnum verði vel tekið í öllum löndum og það mun veita þeim gleði er að því vinna og vafalaust i mörgum til- fellum frelsa marga menn frá hrakning- um og dauða.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.