Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1930, Blaðsíða 5

Ægir - 01.06.1930, Blaðsíða 5
ÆGIR 127 111. Sú trú er víða ríkjandi, að eigi sé auðið að nema sjóvinnu, (Praksis) nema á skipi, en þar verður að skilja á milli handavinnu þeirrar, sem framkvæmd er á því og kunnáttu þeirrar, sem útheimt- ist til þess að fara með skipið við land og á reginhafi. Hið síðara verður hvergi lært nema á sjóferðum, en hið fyrra má læra hvar sem er, engu siður á landi en sjó, en fyr en þetta tvent er sameinað hjá sama manni, er hann ekki sá sjó- maöur, sem að afloknu stýrimannsprófi, getur með góðri samvizku boðið sig fram til að standa fyrir varðflokki (Vagt) og tekið á sig þá ábyrgð, sem því starfi fylgir. Flestar siglingaþjóðir, láta sér annt um að sjómenn þeirra, hvort heldur eru fiskimenn eða farmenn, séu sem bezt færir í sinni grein, þvi afleiðing verður sú, að eigum manna (hér skipunum og þeirra munum) er betur haldið við og aht að útliii, snyrtilegra en þar sem allt er látið vaða á súðum. Hefur oft verið minnst á ýmislegt það i »Ægi«, sem hendir á, að siglingaþjóðir láta sér eigi uppeldi og menntun sjómanna sinna í léttu rúmi liggja. Skólaskipum er haldið «ti, vinnustofum er komið á fót, þar sem unglingar i landlegudögum fá tilsögn þá er þeir óska. Fiskimannaskólum er kom- ið á fót og allt gert, sem auðið er til að skapa stétt, sem hefur þá menntun, sem sú mikla atvinnugrein krefst, í stóru og smáu. IV. Haustið 1918 var námsskeið í handa- vinnu sjómanna haldið hér í Reykjavik, °g styrkti Fiskifélag íslands það fjár- hagslega og lánaði auk þess skrifstofu sma í Lækjargötu, til fyrirlestra á kveldin. Námsskeið þetta átti að standa yfir í tvo mánuði, en sökum spönsku veik- innar varð að hætta eftir fimm vikur. Þessa námsskeiðs var getið í Ægi og hafa síðan nokkur slík verið haldin út um land með styrk írá Fiskifélaginu, og hvarvetna komið að notum. Hauslið 1928 tóku þrír menn sig saman, ræddu um þörf á námsskeiði, sem hér er svo greinileg og hlýtur að vera ljós hverjum hugsandi manni, hófust handa og héldu námsskeið í sjóvinnu. Voru fyrirlestrar haldnir til skýringar vinn- unni og nákvæmlega fylgst með hverjum nemanda, til þess að ganga úr skugga um, hve lengi að meðaltali, menn þurfi að ganga á slík námsskeið, til þess að læra þá handavinnu og brögð, sem krafizt er, að fullgildur háseti á skipi kunni. Reynzlan sýndi, að á 6 vikum má kenna meðalgreindum manni þ'etta, en æski- legast væri þó, að slík námsskeið gætu staðið í tvo mánuði, svo menn gætu æft sig vel á þeim handbrögðum, sem þeir hafa lært, svo síður gleymdust og þeir yrðu handfljótir. Skólar eru mjög margir hér á landi og þá er leitast við að bæta ettir kröfum nútímans; vinnustotur eru í sambandi við suma skólana og þykir framför. Er ekki kominn tími til að athuga, hvort eigi væri einna mest þörf á, að vinnu- stofa væri sett í samband við Stýri- mannaskólann hér, af þeim ástæðum, er hér segir: Vera manna á mótorskipum og bátum kemur ekki að tilætluðum notum, til að uppala sjómenn landsins, vegna þess að sjóvinna er þar lítið um hönd höfð og á þeim stunda flestir menn stéttarinnar vinnu og auðveldast fyrir unglinga að byrja á þeim lífsstarf sitt. Hundruð manna óska þess, að þeir ættu kost á að læra sjómennsku til fullnustu, en tækifærið gefst ekki. Eins og hvervetna

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.