Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1930, Blaðsíða 24

Ægir - 01.06.1930, Blaðsíða 24
146 ÆGI R Sjóslys á vetrarvertíðinni 1930. Vetrarvertiðin s. 1. hefir verið storma- söm og mikið gæftaleysi, sérstaklega fyrri hluta hennar, en afli góður þegar á sjó gaf í verstöðvunum sunnanlands. Mun aflinn hafa verið meiri að meðaltali í róðri eii nokkurntíma hefir áður verið, þó heildarútkoman hjá vélbátum við Faxaflóa hafi verið lægri en á vetrar- vertíðinni 1929. En þegar mikils aflavon er þá á sjóinn er farið, er mönnum hætt við að fara nokkuð ajarft í sjósóknina og því eðlilegt, að slys geti af hlotizt, einkanlega meðan ekki er til neitt sér- sérstakt eftirlits- eða björgunarskip. Drukknanir. 1. Aðfaranótt 3. jan. drukknaði Jónína Ingimundardótlir frá Sætúni i Vest- mannaeyjum. Gizkað á að hún hafi ætlað að sækja vatn i fötu, en við það fallið út af bryggjunni og drukkn- að. Hún fannst drukknuð í fjörunni daginn eftir. 2. 9. jan. fannst Sigríður Fórðardóttir frá Sandgerði örend í fjörunni fram undan Sjávarborg i Reykjavík. Gizkað á að hún hafi drukknað? 3. Hinn 23. s. m. tók stórsjór Þórarinn Halldórsson, Bræðraborgarstíg 3 hér í Rvík, út af togaranum »Draupni«, úti fyrir Vesturlandi — Halamiðum og drukknaði hann. 4. Hinn 24. janúar fórst m.b. Ari frá Vestmannaeyjum með allri áhöfn, 5 mönnum. Voru það: Matthías Gísla- son, Vestmannaeyjum; Einar Gunn- laugsson, Vestmannaeyjum; Baldvin Kristinsson vélstjóri frá Siglufirði; Eiríkur Auðunsson frá Svinhaga á Rangárvöllum, og Hans Andrésson frá Færeyjum. 5. Hinn 25. janúar fórst mótorbáturinn »Haraldur« frá Súðavík með allri áhöfn, 4 mönnum. Voru það: Oskar Matthíasson form., 33 ára, kvæntur. Lætur eftir sig konu og eitt barn. Árni Grimsson, 33 ára; Þórariun Sigurðsson 21 árs og Vilhjálmur Ólafsson, 19 ára. 6. Sunnudagskvöldið 2. marz drukkn- aði Andrés Brynjólfsson verkstjóri, i höfninni í Reykjavik. Dalt fram af uppfyllingunni vestan við verka- mannaskjdið. 7. Hinn 11. marz drukknaði færeyiskur maður af m.b. »Nonni« frá Vest- mannaeyjum, en 4 björguðust. Varð slysið með þeim hætti, að Færeyisk skúta sigldí á bátinn þar sem hann lá við lóðina og braut hann svo, að sökk á skömmum tíma. Þeir, sem af komust björguðust upp á skútuna er á bátinn r.igldi. 8. Aðfaranótt þess 27. jan. fórst fær- eyiska fiskiskipið »Ernestina« frá Klaksvik undir svokölluðu Bjarna- víkurbergi, milli Selvogs og í’orláks- hafnar og drukknuðu þar 8 menn og sá níundi lézt af kulda og vos- búð rétt eftir að hann komst i land, en 17 menn björguðust. Skipið eyði- lagðist. 9. Hinn 6. april drukknuðu 4 menn af bát í Keflavík, en einn bjargaðist. Voru þeir að koma utan úr mótor- bát á höfninni. Suðaustan stormur var á og töluverður sjór. Fyllti bát- inn skammt trá landi og hvolfdi siðan. Þeir sem drukknuðu voru: Guðjón Sigurðsson úr Keflavik, ung- ur maður, ógiftur; Stefán Jóhannes- son úr Keflavík, roskinn maður, á 3 eftirlifandi börn; Július Hannesson unglingspiltur úr Reykjavík og Skafti Guðmundsson, ógiftur maður um

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.