Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1930, Blaðsíða 16

Ægir - 01.06.1930, Blaðsíða 16
138 ÆGIR í veiðistöðvunum hér nærlendis er hæztur hlutur í Súgandafirði á vélbátinn Draupnir, formaður Sturla Jónsson) um 1700 kr. frá áramótum, og um 1850 kr., sé »stúfur« skipverja talinn með. í Bolungavík er hæztur hlutur um 1300 kr. hjá Benedikt Jónssyni, og í Hnífs- dal rúmar 1000 kr. hjá Halldóri Páls- syni útvegsm. S. I. vetur var hæztur hlutur í Hniís- dal 1585 kr., í Súgandafirði 1500 kr., og í Bolungavík um 1200 kr. • • í þessum veiðistöðum er fiskur að jafnaði seldur nýr með hrygg. Blautfisksverð í vetur var almennt 17 aura kg. af stórfiski og 12 aura fyrir smáfisk, en i fyrra var verðið 24 aurar stórfiskur og 18 aura smáfiskur. Saltfisksverð erjafnan nokkuð reikulla en blautfisksverðið. Nú mun það almennt hafa verið 28 — 30 a. kg. af stórfiski, 26 a. af smáfiski og 17 a. ýsa, vegið inn úr bát. Frá 1. apríl lækkaði verðið víðast niður í 24 a. kg. af stórf. og 22 a. smáf. 1 fyrravetur var saltfisksverðið fyrst 37 a. kg. af stórf. og 28 a. af smáf., en eftir 6. fehr. lækkaði stórfisksverðið niður í 34 a., en smáfisksverðið hélzt óbreytt. Tilhögun með skifting aflans á stærri og smærri vélbátum er í aðalatriðum hin sama og og undanfarið, og er getið um fyrirkomulag aflaskiftanna í 5. tbl. Ægis 1929. Gera má ráð fyrir að útgerðin eigi sæmilegri afkomu að fagna á jafn afla- mikilli vertíð og þessari. En veiðarfæra- notkunin fer jafnan versnandi, og í ó- stöðugri veðráttu verður jafnan mjög mikið veiðarfæratap. Beitukostnaðurinn er orðinn ákalega mikill og fer líka sí- vaxandi. Þegar öll kurl koma til grafar, verður ágóði fiskiskipanna undarlega lit- ill á þorskveiðunum hér — stundum alls enginn — þótt aflinn sé mikill. Heyrist nú sama sagan sunnan lands, og sagt er að línuveiðagufuskipin eigi ekki betri af- komu að fagna. Prátt fyrir allt er síldveiðin arðmest fyrir stærri vélbátana hér, og mun svo vera víðast. ísaf. 17. maí 1930. Krisiján Jónsson, frá Garðsstöðum. „Dana". Hafrannsóknaskipið »Dana«, sem margir íslendingar þekkja bæði í sjón og að afspurn, er nú komin norður á bóginn, i Miðjarðarhaf, úr hinni löngu ferð sinni kringum jörðina, sem tekið hefur 2 ár. Forustu leiðangursins hefur prófessor Johannes Schmidt haft og hefur ferðin verið hin merkilegasta. Aðalleiðir skips- ins hafa legið yfir Atlantshaf um Panama- skurðinn, þaðan yfir Kyrrahafið fram með Suðurhafseyjum, með viðkomu- stöðum á Nýja-Sjálandi, Australíu, Síam, Japan, Formosa, yfir Indlanshaf til Ma- dagaskar, þaðan til Góðravonahöfða, vestur með Afriku til St. Helena, til Iíanarisku ej'janna og þaðan inn í Mið- jarðarhaf. Farin vegalengd er yfir 60 þús. sjómílur. Aðalmarkmið ferðarinnar var að ganga úr skugga og fá sönnun fyrir ferðalagi álsins. 1 tvö þúsund ár hafa lifnaðar- hættir og líf álsins verið óráðin gáta. Menn hafa lengi vitað það, að állinn kom úr sjónum og gekk þaðan i ár og vötn. Nú hefur það verið sannað á leið- angri þessum, að Atlantshafsállinn hrygn- ir á sjávardýpi miklu í Saragossahafinu, (þanghafinu) sem er hluti Atlantshafsins, (takmörk 25°—41° nbr. og 18°—53° v.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.