Ægir - 01.06.1930, Síða 8
130
ÆGÍR
útkoman af mælingunum er í aðaldiált-
um þannig:
Fyrst var rannsakaður Róuklakkur
(Hefringskl.) mjög nákvæmlega, ogreynd-
ist þar sem grynnst er aðeins 12 m., en
á kortinu er dýpið 24 m., þetta er all-
stór hraunhryggur um 600 m. á lengd
frá norðri til suðurs, grunnið er töluvert
sunnar en kortið sýnir, þar sem grynnst
er. Mið þar: Háubúr á Sæfjalli, við Bjarn-
arey að austan, og hæðsti tindurinn á Faxa
norðan við Kirkjuhausana á Elliðaey.
Þar næst var rannsakað Sandagrunn
og reyndist það liggja austar en á kort-
inu, dýpi eftir því 23 m. Þarna fundust
14. m. Mið þar grynnst er : Sauðagata á
Suðurey við Dalfjall að vestan og Búð-
arhóll (bær í Landeyjum) í Dímon o.
fl. mið.
Næst var leitað að Olguklakknum og
reyndist minnst dýpi þar 14 m. Hann
liggur nálægt 1 7j sjómilu nær Brandin-
um en koitið sýnir og í því 18 m. Mið
þar sem grynnst er: Blátindur að eins
meir til Brands en Álfseyjar eða Hetta
á Heimakletti snertir austurkantinn á
Brandinum. Mið á Hellisey svo óglöggt,
að ekki þýðir að lýsa því hér.
Breki fyrir vestan var mældur og var
hann réttur á kortinu, sem segir 21 m.
á honum, en þarna fundust 14 metrar
minnst. Mið það : Sér á Hellisey vestur
undan Álsey og Hæna við Ufsaberg.
Svið var næst rannsakað, það liggur
dálítið nær Álsey en kortin sýna, dýpi á
þeim 15 m., en þarna fundust ekki
minna en 23 m. Mið þar: Hundaskerið
við Súlnasker að vestan og Yzti klettur
við Álsey að norðan.
Þar næst var leitað að Þokuklakkn-
um og fannst hann ca. 1 sjómílu nær
Einidrang en kortið sýnir. Dýpi á kort-
inu 23 m., ekki fannst minna en 28 m.
dýyi þarna. Mið þar : Þjófanef í Háhrygg
á Suðurey og Latur breidd sína i Ell-
iðaey að sunnan.
Næst var mælt litla grunnið, sem er
suður af Drangaskerjunum, og er það
því sem næst rétt, i kortinu; í sumum
er dýpið þarna 15 m., en í öðrum 4
faðmar (7—8 m.), þarna reyndust 12 m.
Mið þar: Þúfan í skarðið á Klofadrangn-
um og Grasgeiri norðvestan i Helgafelli
við Hænu að vestan.
Þar að auki voru mæld fjögur grunn,
sem ekki eru á kortinu, en menn þekkt
lengi sem handfæramið. Þau eru þessi:
1. Ingimundarklakkur dýpi 23 m. Mið:
Steinninn á Elliðaey í Bunka á Elliðaey
og Hraunhóllinn við Heimaklett að norð-
an. 2. Hænuklakkur, dýpi 18 m. Mið:
Steinarnir á Brandinum við Álsey að
austan, og jafnjaðra Hæna og Halldórs-
skora að neðan. 3. Gvendarklakkur; dýpi
37 m. Mið: Latur í Kerlingarhól og
Hellisey vel laus vestur undan Álsey. 4.
Einarsklakkur; dýpi 20 m. Mið: Ufsa-
berg norður undan Álsey og Þúfuskerið
vel hálft laust vestur undan Geldungn-
um. Þetta er hættulegt grunn, sem ligg-
ur á fjölfarinni siglingaleið ca. V* sjó-
milu S. S. A. af Sviði.
Ennfremur voru mæld þrjú grunn,
sem að mestu hafa verið óþekkt áður.
Allstórt grunn er ca. V» sjómilu A. N. A.
af Einidrang, dýpi 16 m. Grunn er ca.
2 sjómilur vestur af Breka, dýpi 22 m.
Mið þar: Hálf brekkan á Suðurey vest-
ur undan Álsey og Hrauney við Ufsa-
berg. Þriðja grunnið var rannsakað 13.
nóvbr. eftir upplýsingum, sem ég fékk
eftir að ég var kominn á land, og reynd-
ist dýpi þar 14 m. Mið: Sfærsti Þrí-
drangurinn í Þríhyrning og sér á Suður-
ey vestur undan Álsey. Þetta grunn virð-
ist eftir brotinu að dæma vera all-stórt,
og liggur á fjölfarinni bátaleið nál. 1 sjó-
mílu S. S. V. frá Einidrang.