Ægir - 01.06.1930, Page 14
136
ÆGIR
f
Valdimar Briem.
Valdimar Briem vixlubiskup andaðist
að Stóranúpi 3. maí. Víxlubiskupinn
hafði mjög mist heilsu og krafta á síð-
ustu árum, enda var hann kominn á83.
árið.
Hann var fæddur á Grund í Eyjafirði
1. febr. 1848, sonur ólafs Gunnlaugs-
sonar Briem og Dómhildar Þorsteins-
dóttur frá Stokkahlöðum. Tlu ára gam-
all misti hann báða foreldra sína og var
þá tekinn til fósturs af föðurbróður sln-
um, Jóhanni prófasti Briem í Hruna, og
settur af honum til mennta. 1869 varð
Valdimar stúdent og útskrifaðist af presta-
skólanum 1872. Næsta vor vígðist hann
til Hrepphóla og var þar í 7 ár, en þá
var það prestakall sameinað Stóranúpi
og fluttist séra Valdimar þangað vorið
1880, svo að hann hafði nú, er hann
andaðist, dvalið þar hálfa öld. 1896 varð
hann prófastur og 1909 vixlubiskup Árið
1900 tók hann ólaf son sinn fyrir að-
stoðarprest, en 1908 sagði henn af sér
prestsskap, og fékk þá séra ólafur em-
bættið eftir föður sinn. Séra Valdimar
var talinn ágætur prestur og var mjög
vinsæll hjá sóknarbörnum sínum og
mikils metinn i héraði sínu. En litt lét
hann almenn mál til sín taka. Það var
bókmenntastarfsemi hans, sem gerði hann
snemma þjóðkunnan og það er hún,
sem lengi mun halda minningu hans á
lofti.
Skýrsla
erindrekans í Vestfirðingafjórðungi
janúar—apríl 1930.
Eins og kunnugt er, hefur undanfarin
vertíð verið hin aflasælasta. Liklega hef-
ur aldrei verið meiri gnótt fiskjar hér á
fiskveiðistöðunum en í vetur, og vafa-
laust hefur aldrei komið jafnmikill fisk-
ur á land i fjórðungnum um þenna árs-
tíma.
Vilanlega veldur nokkuru um þetta
aukning íiskiflotans í heild, að veiðiskip-
unum fjölgar, einkum i ísafjarðarkaup-
stað, svo og í Önundarfirði, en í öðrum
veiðistöðum er tala fiskiskipa svipuð, og
fer jafnvel fækkandi sumstaðar, t. d. í
Bolungavík*.
Eins og getið var í 2. tbl. Ægis, varð
hauslaflinn fremur rýr, og einkum hér
i kaupstaðnum. Um og eftir áramótin
voru stöðugir stormar, sem hömluðu
sjósókn og hélzt það fram undirjanúar-
lok, svo að í lok mánaðarins, var meira
en helmingi minni fiskur kominn hér
á land, en yfir haustvertíðina ásamtjan-
úar í fyrra.
En í febrúar og marzmán. og alt fram
að páskum mátti segja, að væri hlað-
fiski.
Gæftir voru stirðar af og til, en góðir
kaílar lengi í senn, einkum í marzmán.
Aflaupphæðin í veiðistöðvum fjórð-
ungsins þaðan sem fiskveiðar hafa verið
stundaðar frá áramótum til 1. maí er
sem hér segir í þurfiski.
Patreksfjörður, á togarann Leikni 2380
skippund.
*) Tvö stór fiskiskip, sem heima eiga i Bol-
ungarvík, línuv. Ölver og vélb. Svalan, hafa
lagt upp mestan sinn afla á tsaíirói í vetur og
því talin þar.