Ægir - 01.06.1930, Síða 18
140
ÆGIR
s. á.; var þá skólinn nefndur nAlþýðu-
°g gagnfræðaskólinn í Flensborg« og
hafa margir mætir menn kennt þar síðan.
Árið 1878, bjó Gislí heitinn Þormóðs-
son (f. v. bóndi, var hann tengdafaðir
Magnúsar Th. S. Blöndahls, útgerðar-
manns í Reykjavik, en þá verzlunar-
maður við P. C. Knudtzonsverzlun í
Hafnarfirði) í Flensborg, en þá voru eigi
hinir stóru kvistir komnir áhúsið, komu
þeir síðar er íbúð i húsinu var ákveðin
fyrir skólastjóra. í norðurstofunni niðri
er að sjónum veit, las Þorleifur heitinn
Jónsson frá Skinnastöðum undir próf
við prestaskólann. — Salurinn syðst í
húsinu var »stásstofa« verzlunarstjór-
anna, rúmgóð og skrautleg. í henni var
haldið hið flotlasta ball, sem sögur fóru
af í Firðinum, á Þrettándakvöld 1879.
Hinn 16. ágúst 1878, veitti konungur
Kristjáni Jónssyní frá Gautlöndum,
sýslumannsembættið í Gullbringu og
Kjósarsýslu og bæjarfógetaembættið i
Reykjavík ; hafði hann fyrst aðseturstað
í Reykjavík, en fluttist síðar i Fjörðinn
og eftir að hann giftist, bjó hann í suð-
urenda Flensborgar og var þá sýsluskrif-
stofan í herbergi við hlið salsins, eða í
landsuðurhorni hússins þar sem fyrrum
var borðstofa verzlunarstjóranna. Þau
börn Kristjáns Jónssonar og frú Önnu
sem í Flensborg fæddust, voru: Þórunn
Solveig, Böðvar, Jón og Þórarinn, nú
hafnarstjóri í Rvik. f*ar var undirritað-
ur löggskráður á skipið »Augúst« er fyrst
var farið í siglingar. Hið gamla hús er
þess vert, að þess sé minnst er það lið-
ur undir lok, því það kemur ofmikið
við sögu Hafnarfjarðar, til þess, að fram
hjá því verði gengið. Þessi orð eru
aðeins til að minna á fá atriði.
Reykjavik 11. júni 1930.
Sveinbjörn Egilson.
Fundargerð.
Ár 1930 föstudaginn 5. febrúar, var að-
alfundur fiskideildarinnar »Garðar« i
Húsavík settur og haldinn á Borgarhóli.
Formaður selti f'undinn og stýrði honum
og nefndi til skrifara Skarphéðinn Stef-
ánsson.
Á fundinum gerðist þetla:
1. Inntaka félagsmanna. I deildinagengu
8 menn.
2. Lesnir upp reikningar deildarinnar
fyrir árið 1929 og samþykktir athuga-
semdalaust.
3. Válrygging opinna vélbáfa. Um mál
þetta urðu alllangar umræður, að síð-
ustu var samþykkt svohljóðandi tillaga:
Fundurinn ákveður að kjósa 3 manna
nefnd til þess að vinna að því að fá
vélbáta hér á Húsavík vátryggða í
Bátaábyrgðarfélagi Eyfirðinga. Ef
þaö ekki tekst, þá að reyna til að
stofna samskonar ábyrgðarfélag fyrir
Húsavíkur-veiðistöð.
I nefndina voru kosnir: Júlíus Hav-
steen, Jón Gunnarsson og Skarphéðinn
Stefánsson.
4. Stjórnarkosning. í aðalstjórn deild-
arinnar voru kosnir: F’órður Eggertsson,
form., Jón Einarsson, féhirðir, Einar
Sörensen ritari. Varastjórn endurkosin
og sömuleiðis endurskoðendur.
5. Fundurinn felur stjórninni, að sjá
um að veiðarfæri opinna vélbáta verði
merkt og að merkin verði tilkynnt i
nærliggandi verstöðvar.
6. Fundurinn ákveður að deildin kaupi
22 eintök af Fiskifélagsritínu »Ægir«
þetta ár.
7. Sýslumaður Július Havsteen vakti
máls á þvi, hvort ekki væri nauðsynlegt
að fá vitaljós á Húsavlkurhöfða eða Héð-
inshöfða, til leiðbeiningar fyrir sjómenn