Ægir - 01.06.1930, Side 20
142
ÆGIR
laus, eða að fiskhúsin séu orðin svo
full, að þess vegna sé ekki hægt að taka
á móti meiru.
Aftan við bókina eru þau lög er nú
eru í gildi og snei ta veiðar og fiskveiðar
við Grænland, hafnarreglugerðir o. fl.,
sömuleiðis 2 kort yfir Suður-Grænland
og fiskigrunnin í Davissundi.
Bókin er prentuð á ágætan pappir og
með mörgum myndum og hin eiguleg-
asta fyrir þá, er kyDnast vilja fiskiveið-
um Grænlendinga, hún er 128 blaðsíður
auk korta i stóru átta blaða broti og
kostar 4 krónur. K. B.
Vitar og sjómerki.
1. Á komandi sumri verður viti nr.
23, Svörtulojtavitinn, byggður upp að
nýju. Nýja vitabyggingin verður grár
steinsteyptur turn með ljóskeri, 13 m á
hæð, og verður hún reist fast við gamla
vitann að norðanverðu. Einkenni, hæð
og ljósmagn vitans verður óbreytt. Gamla
járngrindin verður rifin, að nýju vita-
byggingunni fullgerðri.
2. Á komandi sumri verðqr vitabygg-
ingu nr. 40, Slraumnes, breytt þannig,
að járngrindin verður öll klædd stein-
steypuplötum og verður því vitabygging-
in grár ferstrendur turn með ljóskeri.
Að öðru leyti verður vitinn óbreyttur.
3. í Látravík austur við Horn, verður
á komandi sumri reistur nýr viti, Horn-
bjargsviti. Lengd og breidd vitans verð-
ur 22°23'02" V., 66°24'44" N. Vitabygg-
ingin verður grár ferstrendur furn með
ljóskeri, 10 m há, og verður hún áföst
við íbúðarhúsið, fyrir enda þess. Hæð
logans yfir sjó ca. 30 m. Ljóseinkenni:
3 blossar á 30 sek. bili, þannig: 0,7 ljós
— 4,3 myrkur — 0,7 — 4,3 — 0,7 — 19,3
= 30 sek. Ljósmagn 28 sm, ljósmál 16
sm. Logtími 1. ágúst til 15. maí.
4. Á komandi sumri verður í stað vita
nr. 48, Siglufjarðarhöfn, á Staðarhóli við
Selvík, reistur nýr viti, sem verður grár
steinsteyptur turn með ljóskeri, 8 m á
hæð, og verður hann reistur ofan við
gamla vitann. Ljóseinkenni: hvítur, rauð-
ur og grænn blossi 5. hv. sek. Hæð log-
ans yfir sjó verður ca. 20 m. Ljósmagn
og ljósmál fyrir hvítt ljós 11, rautt 9 og
grænt 8 sm. Vitinn mun sýna þessi horn :
1. hvitt 27°— 77° yfir leguna.
2. grænt 77°—153° yfir Sauðanes.
3. hvítt 153°—160° yfir fjarðarmynnið.
4. rautt 160°—205° yfir Helluboða.
Logtími 1. ágúst til 15. maí.
5. Á komandi sumri verður vita nr.
52, Hjaltegri, breytt í blossa-vita er sýni
2 hvita, rauða og græna blossa á 20 sek.
bili, þannig: 1 ljós — 2 m. — 1 ljós —
16 m. = 20 sek. Ljósmagn og ljósmál
verður fyrir hvitt ljós 11, rautt 9, grænt
8 sm. Að öðru leyti verður vitinn ó-
breyttur.
6. Á komandi sumri verður vita nr.
53, Svalbarðseyri, breytt í blossavita, er
sýni blossa hv. 6 sek. Ljósmagn og ljós-
mál verður fyrir hvítt Ijós 11, rautt 9,
grænt 8 sm. Að öðru leyti verður vitinn
óbreyttur.
7. Á komandi sumri verður nýr viti
reistur í Selvogi i stað vita nr. 94, Sel-
vogsvita. Nýi vitinn verður 140 m N. a.
A. frá gamla vitanum. Byggingin verður
ferstrendur steyptur turn með ljóskeri,
18 m hár. Hæð logans yfir sjó verður
ca. 20 m. Einkenni, Ijósmagn og Jjósmál
verða óbreytt. Gamla járngrindin verður
rifin, að nýju vitabyggingunni fullgerðri.
Reykjavík, 24. maí 1930.
Vitamálastjórinn.
Th. Krabbe.