Ægir - 01.06.1930, Qupperneq 22
144
Æ G I R
Síldarolíu- og fiskimjölsverk-
smiðjur á íslandi fyr og nú.
Síldarverksmiðjur. Evangers verksmiðja
á Siglufirði, var reist árið 1912, en eyði-
lagðist í snjóflóði 1919.
Verksmiðjan »Ægir« í Krossanesi við
Eyjafjörð, er einnig reist árið 1912 og
sama ár byggir Goos verksmiðju sína á
Siglufirði.
Árið 1913 var verksmiðja reist á Dag-
verðareyri við Eyjafjörð, en hún brann
árið 1916; var hún byggð upp aftur en
hætti eftir fá ár og var flutt til Raufar-
hafnar 1926.
1918 reistu hinar sameinuðu íslenzku
verzlanir, verksmiðju á Siglufirði, en
hana keypti síðar Goos.
1913 byrjuðu Þjóðverjar síldarbræðslu
á Sólbakka við Önundarfjörð, sem lagð-
ist niður um tíma. Sfðar byrjaði h. f.
Andvari, sem stofnað var 1925.
H. f. »Kveldúlfur« í Reykjavík á verk-
smiðju á Hesteyri við Isafjarðardjúp,
sem byrjað var að starfrækja árið 1923.
Var þar áður hvalveiðastöðin »Hekla«,
1926 var verksmiðjan á Dagverðareyri
flutt til Raufarhafnar og er starfrækt þar.
1929 er byrjað að reisa sildarbræðslu-
stöð ríkisins á Siglufirði.
Fiskimjölsverksmiðjur. Árið 1915 reisti
ræðismaður Gísli Johnsen verksmiðju á
Vestmannaeyjum, sem starfrækt er enn
og aðra verksmiðju reisti Thomsen o. fl.
á sama stað, árið 1924. Það ár var verk-
smiðja á Norðfirði sett á fót afDr. Paul.
1926 var verksmiðja reist á Isafirði,
sem nú er eign »Fiskimjöl h. f.« á ísa-
firði, og sama ár byrjaði Dr. Paul að
reka verksmiðju á Siglufirði og er hún
einnig síldarolíuverksmiðja.
1927 reisti ræðismaður Gísli Johnsen
fiskimjölsverksmiðju á Vatnsnesi við
Keflavik, en hún brann skömmu síðar,
var endurreist 1929 og er nú eign h. f.
»Lýsi og mjöl«.
1928 var verksmiðja reist í grend við
Reykjavik og rekur h.f. »Fiskimjöl« hana.
H. f. »Bein« reisti verksmiðju á Siglu-
firði árið 1929, sem tók til starfa hið
sama ár.
Grænlendingar og íslendingar.
Hr. A. Weihe ritar í »Dimmalætting«
3. maí 1930, um dvöl Færeyingsins Eli-
esers Rubekksens (Essa hjá Rubekki)
á Grænlandi, sem hrósar mjög greind
Grænlendinga og hversu fljótir þeir séu
að læra. Rubeksen álítur, að þeir standi
ekki eins að baki öðrum þjóðum og al-
mennt er álitið, og hvað fiskiveiðar á-
hrœrir séu þeir eigi langt á eftir fslend-
ingum, eins og þeir voru, áður en Fær-
egingar komu til landsins og fóru að reka
veiðar með ströndum fram, og vel getur
svo farið að Grænlendingar standi þeim
fyllilega á sporði, er fram liða stundir,
hvað fiskiveiðar áhrærir*. Rubeksen mun
vel heima í fiskveiðasögu Færeyja og
Islands og getur því efalaust gefið góðar
upplýsingar um, hve mörg færeysk skip
stunduðu hér veiðar er slúp »Lærken«
byrjaði veiðar hér við land. Pá mætti
rekja söguna til þeirra kennara í fiski-
veiða aðferðum, sem Færeyingar hafa
miðlað okkur er við stóðum þar nálega
á sama stigi og Grœnlendingar — er
Fœregingar fóru fgrst að stunda hér
veiðar.
Þessi kennsla ætti að koma i ljós, svo
við gætum þakkað hana, og virðist tími
til kominn.