Ægir - 01.06.1930, Page 26
148
ÆGIR
stund, oftast 35 — 50 bifreiðir, mest 70 og
minnst 15.
Mest var umferðin á fimmtudagskveld,
eins og áður er sagt. Þá fóru suður á
elleftu stundu 235 bifreiðar, eða nærri
því 4 áhverri mínútu. Er það gífurlega
mikil umferð.
Mönnum hefur oft hætt til þess, að
hnjáta i bifreiðastjórana, kalla þá glanna
og klaufa eða annað, sem því sætir. Þeir
hafa nú rekið af sér ámælið með því, að
reynast yfirleitt ágætlega í þessum mikla
Þingvallaakstri. (»Vísir«).
Skipakomur í sambandi við
alþingishátíðina 1930.
Hinn 13. júní kom skipið »Antonia«
með Vestur-íslendinga og 20. s. m. kom
»Montcalm« með annan hóp Vestur-ls-
lendinga. Um morgun 23. s. m. kom
frakkneska orustuskipið »Suffren« og 24.
hið mikla enska orustuskip »Rodney«
og sama dag komu norska herskipið
»Tordenskjold«, sænska herskipið »Oscar
11« og sameinaðafélagsskipið »Hellig 01av«,
(um 10,000 smálestir), með fulltrúa frá
Danmörku og stúdentahóp. Hið sama
kveld hélt konungsskipið »Niels Juel«
til Hafnarfjarðar og fylgdi »Fylla« því;
lá það í fjarðarmynninu um nóttina og
næsta morgun fóru »Óðinn« og »Ægir«
til móts við það og fylgdu því til Reykja-
víkur, þar sem það lagðist kl. 8 f. h.
hinn 25. júní. <
Fulltrúar og gestir frá Færeyjum komu
á farþegaskipi sínu »Tjaldur«, sem er
fallegt skip og vel viðhaldið.
Farþegaskipið »Polonia« (7500 smál.)
eign Austurasíufélagsins danska, kom 25.
júní um kveldið með félaga úr dansk-
ameríska kvenfélaginu. Þá láguhéreinn-
ig um hátíðina, enska herskipið »Rose-
mary«, sem hér er við mælingar og varð-
skipið »Boyne«.
Norsku skemtiskipin »Meteor« og
»Stella Polaris« láu hér hátíðisdagana.
Eru þau með skrautleguslu skipum, sem
hingað hafa komið, einkum hið siðar-
talda.
Öll þessi skip voru farin héðan að
morgni hins annars júlí.
Áður en þessi skipafjöldi kom, voru
sumir kvíðnir fyrir að skipshafnir myndu
gera ýmsan óskunda er þær væru á
landi, en það fór á annan veg, því fram-
lcoma sjómanna var hin prúðmannleg-
asta í alla staði.
•Hátíðisdagana var veður hið ákjósan-
legasta og fór þessi merka hátíð hið
bezta fram.
Leiðréttingar
við skýrslur Helga Guðmundssonar
fiskifulltrúa í 5. tbl. Ægis-
í siðara dálki á bls. 104, 11. 1. a. o. hefur
fallið ur: »yfir 20°/o« og »(eða 5—6 kg)«, á að
vera: Á íslenzka pressufiskinum hefur meðal-
rýrnunin venjulega ekki reynzt undir 10—12°/o.
í siðari dálki á bls. 105, 6. I. a. o. á milli
»aftur« og »að« á að standa »þannig«.
í fyrra dálki á bls. 107, 5.1. a. o. í stað »litlar«
á að vera »oflitlar«.
í fyrra dálki á bls. 108, 16. I. a. o. í stað »299
869«, á vera: »299.809«. Á sömu bls. i síðara
dálki, 22. 1. a. n. i stað »verkaða«, á að vera:
»óverkaða«. í sama dálki, 13 1. a. n., í stað
»0.15«, á að vera: »0.015«.
í fyrra dálki á bls. 109, 27. 1. a. o., i stað
»172«, á vera: »17 £«.
Á bls. 120 vantar dagsetninguna : »3. mail930«.
Ritstjóri: Sveinbjörn Egilson.
RíkisprentsmiSjan Gutenberg.