Ægir - 01.01.1931, Blaðsíða 11
ÆGIR
o
þar töluverðan usla, sem orsakaði bæði
afla- og veiðarfæratap.
Vestfirðingafjórðungur.
Fyrstu mánuði ársins var tið fremur
stirð þar eins og annarsstaðar, svo að
sjaldan gaf á sjó, en þegar kom fram i
janúar gerði gæftir i nokkra daga og
aflaðist þá ágætlega, mánuðina febrúar
og marz voru aftur móti mjög hagstæðir
og afli ágætur og hélzt hann óslitið til
páska, en við þá er vetrarvertíð miðuð
að jafnaði á Vestfjörðum.
Margir af stóru bátunum frá ísafirði,
sem annars eru vanir að koma til Suð-
urlandsins á vertíðinni fiskuðu þar heima
hjá sér allan tímann.
Vorvertíðin var sömuleiðis mjög góð
á Vesturlandi þangað til að kom fram í
seinni hluta júnímánaðar að draga fór
nijög úr afla, enda hættu þá ileslir veið-
um, en slærri bátarnir fóru að búa sig
undir síldveiðina.
Al'tur á móti brást alveg sumaraflinn
i Arnarfirði, en sá afli hefur að jafnaði
verið undirstaða fyrir afkomu manna
þar i byggðarlaginu, sömuleiðis var afli
rýr bæði í Víkum og á Patreksfirði
i}Trir smærri báta. en nokkuð betra í
I álknafirði.
þilskipin frá Vestfjörðum fiskuðu all-
vel framan afsumrinu, einkum þó Bíldu-
dalsskipin, aftur á móti gekk Dýrafjarð-
arskipunum ver, einkum þegar á leið,
enda voru þau í meira og minna manna-
hraki. Það má gera ráð fyrir að þessi
útgerð fari nú smátt og smátt að ganga
úr sér á Vesturlandi, en þaðersá staður
sem hún hefur verið lengst viðloðandi,
en þegar fiskverðið er lágt eins og var
a þessu sumri, þá getur hún ekki haldið
velli með kaupgjald á móts við annan
stórfelldari útveg, einkum á þeim stöð-
Urn, sem fast kaupgjald er greitt, þó má
sjá það á grein Kristjáns skipstjóra Árna-
sonar frá Bíldudal, sem birtist hér á
öðrum stað í blaðinu, að góðir fiski-
menn muni hafa bærilega atvinnu enn
þá á handfæraveiðum, þó að um hluta-
skifti væri að ræða.
Steinbitsafli var með minnsta móti á
árinu, en hann hefur jafnan verið talin
góð hlutabót, þegar vel hefur aflast af
honum, einkum siðan að markaður fór
að verða í Reykjavík fyrir þá vöru herta
(steinbitsrikling).
Smokkfiskur kom upp að Vesturland-
inu i ágústmánuði og gekk norður með
landinu, en lítið aflaðist af honum enda
gekk hann ekkert inn á firðina, það er
talist gæti, aftur á móti spillli hann mjög
sildveiðum fyrir Norðurlandi, sem af
þeim ástæðum hvarf mjög snemma.
Að haustinu var fiskur lítið stundaður
enda verðið svo lágt að útgerð gat ekki
borið sig með þvi fyrir stærri báta, aftur
á móti var dálítið af bátaafla sent með
togurum til Englands og í desember-
mánuðí fór Esja með farm af fiski í
kössum frá Samvinnufélagi Ísíirðinga til
Englands. Er vonandi að sú tilraun lukkist
og geti það orðið byrjun til þess að tekn-
ar verði upp fastar ferðir með ferskan
fisk á enskan markað, en á þvi er hin
mesta þörf, og einmitt mjög heppilegt
að gera slíkar tilraunir frá Vesturlandi,
sem bæði hefur góðar hafnir og marg-
breytilegan fisk allt árið, sem er heppi-
legur fyrir enskan markað.
Norðlendingafjórðungur.
Fyrsti ársfjórðungurinn var mjög rýr
á Norðurlandi eins og vant er, enda var
ótíð þar mikil og því óhagstætt til sjó-
sóknar, þó virtist fiskur vera þar nokk-
ur ef á sjó var farið. 1 febrúarmánuði
var farið nokkrum sinnum á sjó úr
Grímsey og aflaðist þá allvel af vænum