Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1931, Blaðsíða 29

Ægir - 01.01.1931, Blaðsíða 29
ÆGIR 23 t Hannes Hafliðason fyrv. skipstjóri, andaðist að morgni hins 21. janúar, eftir skamma legu. Hann var fæddur hinn 19. júlí 1855 og var því rúmra 75 ára gamall erhann lézt. Hann var formaður skipstjórafélagsins »Aldan« í fjöldamörg ár og í 8 ár var hann formaður Fiskifélags Islands. Auk þessa gengdi hann mörgum trúnaðar- störfum í hæjarfélaginu var t. d. próf- dómari við Stýrimannaskólann framundir 20 ár og bæjarfulltrúi. I 7. hefti »Ægis« 1925, er hinns látna minnzt er hann var 7o ára og þar lýst nokkuð ítarlega störf- um hans, meðan hann var formaður Fiskifélags íslands, svo þvi er sleppt hér. Heiðursfélagi Fiskifélagsins varð Hann- es snemma á árinu 1926. Fiskifélag íslands. Yið áramót síðustu tóku til starfa hjá Fiskifélaginu, þeir: Árni Friðriksson fiskifræðingur og Þor- steinn Loftsson vélfræðingur. Eins og áður er getið, voru sérfræð- ingum þessum veittar hinar auglýstu stöður, sem síðasta Fiskiþing fyrirskip- aði að stofna. 1 næsta tbl. munu hinir nýju starfsmenn gefa yfirlit yfir væntan- legt starfssvið sitt, þar sem rúm er ekki í þessu tbl. Vélfræðingur Þorsteinn Loftsson síglir til útlanda hinn 29. janúar, til að athuga mótorvélar o. fl. á vélfræðilegu sviði. Væntanlega verður hann um tveggja mánaða tima i þeirri ferð. Togari strandar við Vestm.eyjar. Kemst aftur á flot með flóðinu. Kl. um 1 aðfaranótt 27. þ. m., var Stefán Gíslason bóndi við Stórhöfða í Vestmannaeyjum þess var, aðskip strand- ar á flúð norðan við höfðann. Var af- taka austanveður, svo að varla var stætt úti. Stefán sendi strax tvo sonu sina til bæjarins, til að gera Björgunarfélagi Vest- mannaeyja aðvart. Þeim tókst að komast í bæinn í ofviðrínu og vöktu framkvæmda- stjóra Björgunarfélagsins, Georg Gíslason kaupmann, Hann brá skjótt við og reyndi að ná sambandi við óðinn, sem lá við Eiðið. Tókst honum að ná sambandi við hann með Ijósmerkjum. Óðinn hélt þegar á strandstaðinn. Fór Georg því næst, ásamt Jóhanni Jósefssyni alþm., Sveini Sigurhanssyni og þýzkum skipstjóra, er staddur var í Eyj- um, út að Stórhöfða. Þegarþangað kom, tjáði Stefán þeim, að skipið myndi komið af skerinu; en það sendi stöðugt frá sér neyðarmerki. Voru skip þá komin á strandstaðinn, þ. á. m. óðinn. Næsta kvöld kom skeyti frá Óðni og sagði þar^ að togarinn myndi lítið lekur og að hann gæti komist i höfn, þegar slotaði veðrinu. Frá Vestmannaeyjum. Óðinn tók tvo þýzka botnvörpunga austur með Söndum s5/i að landhelg- isveiðum, I. H. Wilhelm frá Gestemúnde og Margarethe frá Gestemúnde. Skip- stjórarnir voru báðir sektaðir áður fyrir landhelgisbrot. Béttarhöld byrja ST/».

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.