Ægir - 01.01.1931, Blaðsíða 24
18
ÆGIR
Fjórðungsþing
fiskifélagsdeilda Norðurlands.
8. fjórðungsþing Fiskifélagsdeilda Norð-
urlands var sett og haldið á Akureyri
þann 12. desember 1930, kl. 11 f. h.
Fiskiþing þetta var aukaþing, sem
haldið var í tilefni af bréíi forseta Fiski-
félags Islands dags. 23. sept. þ. á.
Á þinginu voru mættir auk forseta
Ivarls Nikulássonar:
Fyrir Grenivikurdeild:
Gunnar Þórðarson.
— Akureyrardeild:
Steindór Hjaltalin,
Stefán Jónasson.
— Árskógsstrandardeild:
Sigurvin Edílonsson.
— ólafsfjarðardeild:
Þorvaldur Friðfinnsson.
— Fiateyjardeild:
Guðmundur Pétursson.
— Húsavikurdeild:
Þórður Eggertsson.
— Raufarhafnardeild:
Páll Halldórsson.
— Hríseyjardeild:
Páll Bergsson.
Þá var:
1. Kosin kjörbréfanefnd og hlutu
kosningu: Páll Bergsson, Steindór Hjalta-
lín, og Páll Halldórsson.
2. Kosin dagskrárnefnd og voru í
hana kosnir: Stefán Jónasson, Þórður
Eggertsson, Þorvaldur Friðfinnsson.
3. Kosin nefnd til að athuga laga-
hreytingar þær, er stjórn Fiskifélagsins
hafði sent til umsagnar, og voru í hana
kosnir: Guðmundur Pétursson, Páll
Bergsson, Páll Halldórsson.
4. Erindreki Fiskifélagsins lagði fram
skrá yfir fiskifélags-deildir Norðurlands
með upptölu á formönnum þeirra og
meðlimatölu deildanna.
Þá var kl. 11,30 og var fundi frestað
til kl. 4 s. d.
IÍIukkan 4 var fundar aftur settur og
mætti þá: Fyrir Dalvíkurdeild: Sveinbjörn
Jóhannsson.
5. Kjörbréfanefnd bar fram tillögu um
að kjörbréf allra fulltrúa frá deildunum
væru tekin gild, og var tillagan samþykkt.
6. Þá var kosin þriggja mann fjárhags-
nefnd. 1 hana voru kosnir: Stefán Jónas-
son, Þorvaldur Friðíinnsson, Steindór
Hjaltalín.
7. Þá komu vitamál til umræðu. Eftir
nokkrar umræður voru þessar tillögur
bornar upp:
a) »Fjórðungsþingið ítrekar áskorun
sína, frá síðasta þingi um að rann-
sakað verði hið alla fyrsta vitastæði
á Hrólfsskeri, eða Gjögri ef Hrólfs-
sker reynist óhæft, og ennfremur
að rannsökuð verði leiðin milli
Málmeyjar og Þórðarhöfða. Tillaga
þessi var samþykkt með samhljóða
alkvæðum.
b) »Fjórðungsþingið felur stjórn Fiski-
félags íslands að skora á Alþingi
að veita nægilegt fé, eða sjá um að
fé fáist annars slaðar frá, til þess
að byggður verðu öflugur viti með
hljóðbendingartækjum á Strákum
við Siglufjörð, er komið gæti i stað
hljóðdufls þess á Helluboða, er áður
hefir verið beðið um, en vitamála-
stjóri telur siður tiltækilegt.« Tillaga
þessi var einnig samþykkt.
8. Þá var síldareinkasölumálið tekið
til umræðu. Eftir ítarlegar umræður
voru þessar töllögur bornar upp:
»Fundarmenn eru einróma sammála
um það, að Síldareinkasala Islands hafi
að engu leyti fullnægt þeim kröfum, sem
menn hafa fullan rétt til að gera til