Ægir

Årgang

Ægir - 01.01.1931, Side 13

Ægir - 01.01.1931, Side 13
ÆGI R 7 ferðir áður, en lítið aflað, loðna fór að fást á Hornatirði snemma í marzmánuði og íékkst oftast að öðru hvoru alla ver- tiðina, en undir loðnuveiðinni hefur Hornafjarðarfiski vanalega verið komið. Það brá þó útaf í þetta sinn, því þó að oftast væri nægileg beita og tíð væri ekki óhagstæð i marzmánuði, þá var þó afli tregur þar framan af vertíðinni og fram til páska, en þá fóru flestir bátar þaðan heirn til sín, og komu sumir ekki aflur upp úr páskunum, en eflir páskana kom þar ágætisafli, sem hélzt fram í maí og aflaðist þá ágætlega á þeim tíma. Framan af vertíðinni stunduðu31 bát- ur veiðina frá Hornafirði, þar af 4heima- bátar, en eftir páska gengu þaðan aðeins 20 bátar. Á Fáskrúðsfirði var afli einnig tregur fyrsta ársfjórðunginn, og var þó jafnan oægileg og góð beita, þvísildfórað veið- ast snemma í febrúar á Norðfirði og ^eyðisfirði og víðar á fjörðunum og var seld tii beitu. t’egar kom fram i aprílmánuð fór að aflast ágætlega frá öllum fjörðunum, og Var um tima meiri afli á Austfjörðuni en áður hafði þekkst, enda var alltaf til næg ný beita, því síld fékkst í kastnætur a Seyðisfirði og var ílutt þaðan til hinna verstöðvanna. í verstöðvunum fyrir norðan Seyðis- fjörð er yfirleitt ekki farið að stunda fóðra, sem heitir fyr en kemur fram i Júnímánuð, var afli þar allgóður yfir snmarið, en að samtöldu þó nokkuð ojinni en árið áður. f'i'á Vopnafirði og Skálum var nokk- uð flutt út af ferskupi fiski, ýsu, sem færeyskir dragnótabátar sem voru að veiðum þar keyptu, var þessi fiskur fluttur 01 Færeyja og lagður í kælihúsið íTveraa. Samtals var aflinn á Austurlandi nokk- uð meiri en árið á undan, enda voru i bátarnir fieiri, þegar tekið er tillit ti bátafjöldans og þess togaraafla, sem lagð- ur var þar i land af togurum frá Faxa- flóa, má gera ráð fyrir að meðalafli á bát sé þar nokkuð likur og árið áður. Tafla I sýnir fiskaflann á öllu land- inu og hvernig hann skiftist á milli veiði- stöðva og veiðtækja að nokkru leyti. Síldveiðin. Síldveiðin geklc mjög vel á árinu. Um 28. janúar aflaðist töluvert af síld i lag- net á Norðíirði og Seyðisfirði, og hélzt sú veiði út febrúarmánuð, og við Suður- landið fór sild að fiskast mjög snemma eins og hér er áður tekið fram. Snemma í júní fór að fiskast síld í reknet út af Siglufirði og 100 tunnur af síld fengust þar í snurpunót 2. júlí, enda fór þá sild að aflast í snurpunót fjTÍr öllu Norðurlandi, en sú síld fór öll í bræðslu. 12. júlí er búið að afla af bræðslu- sild um 40 þús. hl. og hefði getað verið mikið meira, en verkfall, sem hófst við Krossanesverksmiðjuna snemma í júlí, og stóð til 10. s. m., að samningar kom- ust á í Reykjavík hjá sáttasemjara ríkis- ins, dróg mjög úr veiðinni, þar sem öll skipin urðu að safnast saman um þær fáu stöðvar, sem voru farnar að taka á móti, en þær urðu fljótt yfirfullar og Rík- isbræðslan ekki fullbúin, svo hún gat heldur ekki farið að taka á móti. Það má telja nokkurn veginn vist, að mjög litil eða engin stöðvun hefði orðið á af- greiðslu fiskiflotans, hefði þetta stopp ekki komið í Krossanesi og skipin getað dreyft sér jafnt á milli stöðvanna, því að söltun á síld byrjaði almennt norðan- lands um miðjan júlí, enda var sildin strax óvenjulega feit, og þó að áta væri nokkur í júlísíldinni, þá verkaðist hún vel og hélt sér.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.