Ægir - 01.01.1931, Qupperneq 27
ÆGIR
21
10. gr.: t staðínn fyrir o2/s fulltrúa«
komi »s/‘ fulltrúa«.
13. gr.: Malsgreinin: »Hún ræður fram-
kvæmdastjóra og má hann ekki eiga sæti
í stjórninni« og í næstu málsgrein »einn-
ig aðra« falli burt.
Síðasta málsgr.: »Framkvæmdastjóri á
sætí á stjórnarfundum» falli burt.
14. gr. Orðið »Framkvæmdastjóri« falli
burt og i staðinu fyrir »þá« komi »hann«,
í staðinn fyrir »yfirskoðunarmönnum«
komi »endurskoðunarmönnum«.
18. gr.: 1 stað »félagsmanna« í lok
greinarinnar komi »flskifélagsdeildafull-
trúa, æfifélaga og heiðursfélaga«.
Allar þessar breytingar voru samþykk-
ar. Siðan var lagafrumvarpið lesið upp
og samþykkt lið fyrir lið með þessum
áorðnu breytingum.
20. Þá var gengið til kosninga. Til full-
frúa á næsta fiskiþing — eða til næstu
3ja ára, — voru kosnir:
Guðmuudur Pétursson með 9 atkv.
Steindór Hjaltalín með 5 atkv. með
hlutkesti milli hans og Páls Halldórsson-
ar, er fengu jöfn atkvæði.
Varafulltrúar voru kosnir:
Páll Halldórsson með 8 atkvæðum.
Páll Bergsson með 7 atkv.
Þá var kosinn forseti fjórðungssam-
bandsins,Guðmundur Pétursson útgerðar-
maður með 6 atkv., en til vara Stefán
Jónasson.
Til ritara og féhirðis fjórðungssam-
bandsins var kosinn Steindór Hjaltalín,
og til vara Páll Bergsson.
Þá var samþykkt að halda næsta fjórð-
ungsþing á Akureyri.
Fleira var ekki fyrir tekið, fundargerð-
in lesin upp og samþykkt.
Þinginu slitið kl. 9,30 e. m.
Akureyri, 13. des. 1930.
Karl Nikulásson. Guðm. Pétursson.
Páll Halldórsson. Steindór Hjaltalin.
Porv. Friðfinnsson. Pórður Eggertsson.
Sigurvin Edílonsson. Páll Bergsson.
Gunnar Pórðarson. Sleján Jónasson.
Sveinbjörn Jóhannsson.
Afli á m.b. „Geysi“
frá Bíldudal, sumarið 1930.
Sumarið má telja meðalaflaárá hand-
færaveiðiskip hér fyrir Vestfjörðum, þó
það revndist okkur betur, en tiðarfarvar
heldur erfitt, oftast austan og norðaust-
an strekkingar með þoku, sem reyndar
er tiðasta árin fyrir Vestfjörðum á sumrin,
og er þessi átt sérstaklega bagaleg seinni
part sumra, þegar helzt þarf að sækja
allan fisk austur á Húnaflóa. Mér hefur
reynzt á undaníörnum árum, að effir
kemur fram í miðjan júní, að það sé
ekki nema tap að vera að leita fisks nær,
en út at Hornbjargi, en þetta er oft erf-
itt, og gengur oft langur tími i að kom-
ast þetta á skipum með litlum vélum,
þegar maður er óheppinn með veður.
Við vorum við veiðar í fjóra mánuði,
eða 121 dag, frá 24. aprí! til 23. ágúst,
og ötluðnm 570V2 skpd. af þurrum fiski.
af þessum tíma vorum við 92 daga á
fiski, þar í taldir allir dagar, sem ein-
hver fiskur kom á skipið, en auðvitað
eru margir dagar, sem ekki eru nema
hálfir eða brot úr dögum, eftir því sem
komið eða farið var af fiski, hinn tfm-
inn gekk í ýmsar frálafir, að fara heim,
að losa 11 sinnum, að afla sér beitu eða
þá veður, sem hamlaði. Þessar frátafir