Ægir - 01.01.1931, Page 31
Æ G 1 B
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
AÐALFUNDUR
AðaKundur hlutafélagsins Eimskipafélags íslands
verður haldinn í Kaupþingssalnum í húsi félagsins í
Reykjavík, laugard. 27. júní 1931 og hefst kl. 1 e. h.
DAGSKRÁ:
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmd-
um á liðnu starfsári, og frá starfstilhöguninni á yfir-
standandi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur
fram til úrskurðar endurskoðaða rekstursreikninga
til 31. des. 1930 og efnahagsreikning með athuga-
semdum endurskoðenda, svörum stjörnarinnar og
tillögum til úrskurðar frá endurskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögúr stjórnarinnar um skift-
ingu ársarðsins.
3. Kosning fjögra manna í stjórn félagsins, í stað
þeirra sem úr ganga samkvæmt félagslögunum.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess. er. frá
fer, og eins varaendurskoðanda.
5. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem
upp kunna að verða borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða. Aðgöngumiðar að fund-
inum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu fé-
lagsins í Reykjavík, dagana 25. og 26. júní næstk. Menn geta fengið eyðublöð
fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Reykjvík.
Reykjavík, 6. janúar 1931. STJÓRNIN