Ægir - 01.02.1933, Page 9
ÆGIR
5Í
af þessu fé ávisun, sem Fiskisölusam-
lagið i Reykjavik muni senda fyrir ákveð-
inn dag, ásamt farmskírteinum fyrir 500
lestir af fyrsta og annars flokks línuveidd-
um stórfiski frá Austur- og Norðurlandi,
matsvottorðum, vátryggingarskirteinum
og öðrum skilríkjum, sem um hefir sam-
ist, að seljandinn sendi. Afsalarhann sér
öllum rétti til að ráðstafa þessu fé öðru-
vísi, þangað til dagur sá sem tiltekinn er,
er liðinn, svo útflytjandinn á íslandi sé
f^yggur gegn því, að hann kunni að sjá
sig um hönd áður en farmskjöl eru kom-
in til London og hætt við allt saman.
Símar Barclays banki síðan viðskifta-
banka sínum í Reykjavík, að N. N. í
Barcelona, hafi »opnað óafturkallanlega
kredit til handa Union í Reyjavik að
upphæð segjum £ 15.000 til 20. næsta
mánaðar, gegn framvísun gagna þeirra,
er ákveðin eru í kaupsamningi, og sím-
skeytið telur upp. Regar þetta skeyti er
komið, er útflytjandinn tryggur um að
peningarnir verði greiddir, og getur sent
skipið af stað strax og búið er að setja í
það farminn.
Þegar vörum er skipað út gefur skíp-
stjórinn, eða umboðsmaður hans kvittun
fyrir farminum, sem heita farmskírteini,
og má hann ekki afhenda farminn nema
hann fái farmskirteinin aftur. Eru þau
þvi trygging fyrir, að farmurinn sé í skip-
inu, og getur sá sem hefur þau í sínum
vörzlum ráðstafað farminum. Bankmn á
Islandi getur því greitt umsamið verð fyrir
farminn, gegn þvi að fá í sínar hendur
farmskjölin og einnig opnað kreditina
áfram^il útbús síns, gegn því að útbúið fái
farmskjöl öll. Getur það því ef svo ber
undir sent þau beint til London, en venju-
lega sendir það þau til aðalbankans í
Reykjavik. Þar eru skjölin tekin saman,
stundum gefur skipstjóri heildarkvittun
fyrir farminum og gerir það viðskiptin
óbrotnari en ef verið er með sitt farm-
skirteinið fyrir hverja höín, og síðan eru
öll umsamin skjöl sett í póst, til við-
skiptabanka okkar í London, sem venju-
lega er Hambros Bank. Sendir hann þeg-
ar sendil sinn, sem er í gullbryddum
frakka og með pípuhatt, til Barclays-
banka með öll skjölin. Þar eru þau skoð-
uð og borin saman við fyrirmæli þau,
sem bankinn fékk frá Spáni þegar pen-
ingarnir voru lagðir inn, því ef nokkru
skakkar, verður hann að fá leyfi til að
leysa slik skjöl inn, frá Spáni. Allt slíkt
tekur tíma og er ekki að vita nema kre-
ditin renni út á meðan beðið er eftír
svari. Verður þá að opna nýja kredit og
kostar allt slíkt bæði tíma og peninga,
Eru það því öruggustu starfsmenn bank-
anna heima, sem sjá um þessar kreditir
enda ganga þær venjulega eins og í sögu.
Þegar búið er sannfæra sig um að allt
í lagi, greiðir Barclaysbanki andvirði
farmsins til Hambrosbanka, en hann
leggur það aftur inn á réikning þess
þess banka, sem sendi honum skjölin,
og lagði út í bili, peninga þá er fram-
leiðendur fengu. Er farmurinn því að
fullu greiddur, meðan hann er á leiðinni
og er hann sjaldan kominn lengra en
suður fyrir írland. Eru farmskjölin síð-
an send til bankans eða inntlytjandans í
Barcelona, og liggja tilbúin þegar skipið
kemur þangað.
Hefur innflytjandinn venjulega samið
við hóp verkamanna um uppskipun.
Eru þeir mjög nákvæmlega skipulagðir
og er t. d. félagi hafnarverkamanna skipt
í deildir og vinnur sérstök deild að upp-
skipun á öllum saltfiski, er hingað kem-
ur (Agrupacion de pesca salada de los
obreros de la muella). Eru í henni rúm-
lega 50 manns og mikið atvinnuleysi, því
sjaldan er not fyrir nema 20 og þá ekki
nema fáa daga í einu. En sá semersér-