Skinfaxi - 01.02.2010, Qupperneq 9
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 9
Sigurður Guðmundsson, landsfulltrúi
UMFÍ, segir að verið sé að efla almenn-
ingsíþróttir af því að sá hópur fólks sem
stundar almenningsíþróttir fari ört stækk-
andi. Haldið verður vel utan um göngu-
vefinn ganga.is og Fjölskyldan á fjallið og
þessir þættir útfærðir enn frekar.
„Farið verður út í einstaklings- og
fyrirtækjakeppni um það hverjir ganga á
flest fjöll, en grunnurinn er að almenning-
ur hreyfi sig sem mest og fái ánægju út
Sigurður
Guðmundsson,
landsfulltrúi
UMFÍ.
Vakning á meðal
almennings
fyrir hreyfingu almennt
úr verkefninu. Fólk getur hlaupið, hjólað
og synt, en aðalatriðið er hreyfing með
einhverjum hætti,“ sagði Sigurður.
Vona að við fáum
þjóðina til að standa upp
og hreyfa sig
– Hvernig hefur undirbúningur verkefnis-
ins gengið?
„Undirbúningur hefur staðið yfir í
nokkra mánuði og styrktaraðilar, sem
komið hafa að verkefninu, eru mjög já-
kvæðir. Ég er mjög bjartsýnn á sumarið
og vona að við fáum þjóðina til að standa
upp og hreyfa sig enn frekar en hún hef-
ur gert fram að þessu. Verkefnið sem slíkt
fer af stað í lok maí og stendur fram í
september. Helstu upplýsingar um það
verður hægt að sækja inn á gönguvef-
inn og svo verður gefin út göngubók
og henni dreift um land allt. Þar verður
hægt að finna helstu gönguleiðir á land-
inu og ég hvet fólk til að nálgast þessa
bók þegar hún kemur út. Það er tilvalið
að nota hana í ferðalaginu og finna hent-
ugar gönguleiðir. Bókin mun liggja
frammi á sundstöðum víðs vegar um
landið og fleiri stöðum og munum við
greina frá því þegar nær dregur,“ sagði
Sigurður.
Viðurkenningar
fyrir 30, 60 og 80 skipti
Sigurður sagði að þátttakendur muni
fá sérstaka viðurkenningu, brons fyrir 30
skipti, silfur fyrir 60 skipti og gullmerki
fyrir 80 skipti og fleiri. Verkefnið mun
standa í yfir í 103 daga. Þeir sem ganga á
flest fjöll eiga von á glaðningi en dregið
verður úr sérstökum potti. Vinningar
verða tengdir útivist.
Leggjum mikið
upp úr að fjölskyldan
taki þátt
„Ég er mjög bjartsýnn á góða þátttöku
en það er mikil vakning á meðal almenn-
ings fyrir hreyfingu almennt. Því leggjum
mikið upp úr því að fjölskyldan taki þátt,“
sagði Sigurður Guðmundsson, landsfull-
trúi UMFÍ, í samtali við Skinfaxa.
isnic
Internet á Íslandi hf.