Skinfaxi - 01.02.2010, Blaðsíða 28
28 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
86. skjaldarglíma Skarphéðins fór fram
að Laugarvatni 20. febrúar sl. Í tilefni þess
að heil öld er liðin frá því að fyrsta skjald-
arglíman fór fram í Þjórsártúni sumarið
1910 var eldri skjaldarhöfum boðið og
voru margir þeirra viðstaddir. Þarna fór
fram keppni sjö yngri flokka ásamt skjald-
arglímum bæði karla og kvenna. Kepp-
endur voru 46 talsins frá sjö félögum.
Hápunktur mótsins var sjálf skjaldar-
glíman en þar mættu til leiks sex glímu-
garpar með Ólaf Sigurðsson, Laugdælum,
og Stefán Geirsson, Samhygð, fremsta í
flokki. Báðir eru meðal sterkustu glímu-
manna landsins, Ólafur er þrefaldur
skjaldarhafi en Stefán hafði sex sinnum
borið skjöldinn á undanförnum 11 árum.
Úrslitaglíma þeirra var löng, tvísýn og
spennandi. Báðir glímdu af varfærni en
sífellt viðbúnir í sókn og vörn. Um síðir
náði Stefán Ólafi upp í sitt fræga vinstri
fótar klofbragð og lagði hann hreinni
byltu.
Aðrir keppendur stóðu lítt fyrir Stefáni
og lagði hann flesta á fyrsta bragði hátt
og glæsilega. Svipað var að segja um Ólaf
sem varð annar enda standa þessir há-
vöxnu, stæltu garpar nú á hátindi ferils
síns.
Það var vel við hæfi að einn af glímu-
köppum Samhygðar, Sigurður Steindórs-
son frá Haugi, afhenti köppunum verð-
laun sín og krýndi skjaldarhafann. Sigurð-
ur er sigursælasti glímumaður skjaldar-
glímunnar frá upphafi en hann sigraði sam-
fleytt tíu sinnum í röð árin 1961 til 1970.
Í 9. skjaldarglímu Bergþóru var líka tals-
Úr hreyfingunni
Skjaldarglíma Skarphéðins 100 ára:
Samhygð sigraði tvöfalt
verð spenna enda ljóst að nýr skjaldar-
hafi yrði krýndur því að enginn af fyrri
skjaldarhöfum var viðstaddur. Samhygð
átti fjóra keppendur af fimm og hlutskörp-
ust varð hin geysisterka glímukona Marín
Laufey Davíðsdóttir sem er aðeins 14 ára
gömul og langyngst skjaldarhafa.
Úrslitaglíman var á milli hennar og Hug-
rúnar Geirsdóttur sem glímdi af mikilli
snerpu en féll fyrir hinni öflugu snið-
glímu Marínar. Í þriðja sæti var Halldóra
Markúsdóttir sem glímdi af mikilli lipurð
að vanda. Ingibjörg Markúsdóttir meidd-
ist á olnboga og gat ekki lokið glímunni.
Allar kepptu þær fyrir Samhygð.
Í heild sinni var þetta mikill sigurdagur
fyrir Samhygð. Glímukappar félagsins
unnu fjögur verðlaun af fjórum möguleg-
um og sigruðu tvöfalt í skjaldarglímun-
um en það hefur ekki áður gerst. Þetta er
ávöxtur af góðu starfi Stefáns Geirssonar
sem stjórnar glímuæfingum í Félags-
lundi. Að loknu móti bauð glímuráð HSK
viðstöddum til veislu í Menntaskólanum
og þar var meðal annars rifjuð upp saga
skjaldarglímunnar síðustu 100 árin.
Skjaldarhafar
2010:
Stefán Geirsson,
Samhygð, og
Marín Laufey
Davíðsdóttir,
Samhygð.
Ungmennafélag Eyrarbakka:
Hugur í nýrri stjórn félagsins
Ívar Örn Gíslason var kosinn formaður
Ungmennafélags Eyrarbakka á aðalfundi
þess 13. desember sl. Þó nokkrar breyt-
ingar urðu á stjórn félagsins. Ívar Örn
tók við af Jóni Ólafssyni sem verið hafði
formaður undanfarin ár. Helga Böðvars-
dóttir var kosin gjaldkeri og tekur við af
Bjarna Jóhannssyni og Karen Hafþórs-
dóttir var endurkjörin ritari.
Mikill hugur er í nýrri forystu félagsins
og ýmis verkefni í gangi eða eru farin af
stað, s.s. badmintonæfingar, handbolta-
æfingar, íþróttaskóli fyrir börn á leikskóla-
aldri og hópgítarkennsla.
„Það eru bara spennandi tímar hér
fram undan hjá ungmennafélaginu. Það
er ætlunin að rífa starfsemina upp og fá
fólk í lið með okkur svo það megi takast.
Það er aldrei mikilvægara en einmitt á
þessum tíma að vinna vel saman,” sagði
Ívar Örn Gíslason.
Stjórn Ungmennafélags Eyrarbakka, en
í henni eru Helga Böðvarsdóttir, Karen
Hafþórsdóttir og Ívar Örn Gíslason.