Skinfaxi - 01.05.2010, Síða 38
38 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Úr hreyfingunni
Bjarni Már Svavarsson nýr formaður Umf. Grindavíkur
Bjarni Már Svavarsson var
kjörinn formaður aðalstjórn-
ar Ungmennafélags Grinda-
víkur á aðalfundi félagsins
19. maí sl., en hann tók við
af Gunnlaugi Hreinssyni sem
lét af formennsku eftir 15 ár. Gunnlaugur er
þó ekki alveg hættur störfum fyrir UMFG því
að hann situr áfram í stjórninni sem gjaldkeri.
Stjórnarmönnum UMFG var fækkað úr 7 í 5.
Í stjórninni eru, auk Bjarna og Gunnlaugs,
Gunnar Jóhannesson, varaformaður, Ingvar
Guðjónsson, ritari, og Sigurður Enoksson,
meðstjórnandi.
Bjarni Már sagði að fram undan væru ýmis
verkefni sem gaman yrði að takast á við og
þess vegna hefði hann ákveðið að bjóða fram
starfskrafta sína. Sagðist hann vonast til að
eiga gott samstarf við íþróttahreyfinguna í
Grindavík. Bjarni Már hefur sjálfur komið víða
við í íþróttum og varð m.a. Íslandsmeistari í
götuhjólreiðum auk þess sem hann hefur
komið nálægt júdó og hlaupum. Undanfarin
ár hefur hann starfað töluvert fyrir sunddeild
UMFG og setið í aðalstjórn UMFG.
Á fundinum voru samþykktar reglugerðir
um forvarnasjóð og heiðursmerkjanefnd
auk þess sem smávægilegar orðalagsbreyt-
ingar voru gerðar á lögum UMFG.
Bjarni Már Svavarsson,
nýkjörinn formaður
Ungmennafélags Grindavíkur,
ásamt tveimur sonum sínum.
Vignir Örn Pálsson, formaður HSS:
„Leggst vel í mig að vera kominn aftur til starfa“
63. ársþing Héraðssambands Strandamanna,
HSS, var haldið á Hótel Laugarhóli 3. júní sl.
Jóhann Björn Arngrímsson, sem verið hefur
formaður sambandsins í þrjú ár, gaf ekki
kost á sér til endurkjörs. Í hans stað var Vignir
Örn Pálsson kjörinn formaður en hann var
formaður HSS um sex ára skeið, á árunum
2001–2007.
Aðrar breytingar á stjórninni urðu þær að
Rósmundur Númason kemur nýr inn en
Andri Arnarson gekk úr stjórn.
Ársþingið gekk vel en alls mætti 31 fulltrúi
frá sex félögum á þingið. Fulltrúar Ungmenna-
félags Íslands á þinginu voru Helga Guðrún
Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, Garðar Svans-
son, stjórnarmaður, og Sæmundur Runólfs-
son, framkvæmdastjóri UMFÍ.
„Það leggst bara vel í mig að vera kominn
aftur til starfa. Fram undan er sumarstarfið
sem verður með hefðbundnum hætti. Við
höldum mót í knattspyrnu, frjálsum íþróttum,
barnamót og sundmót á Laugarhóli. Við ætl-
um að fjölmenna á Unglingalandsmótið í
Borgarnesi með þátttakendum í USVH, en
samvinna við þá með þessum hætti hefur
verið undanfarin ár og gengið með ágætum.
Við verðum með starfsmann í vinnu í sumar
sem mun sjá um mótahald og aðra þætti í
starfseminni. Þá var ákveðið á þinginu að
stofna svokallað landsmótsráð sem mun
vinna að skipulagningu og þátttöku okkar í
Unglinga- og Landsmótum,“ sagði Vignir
Örn Pálsson, nýkjörinn formaður HSS.
„Ég var ákveðinn að stíga til hliðar en ég
hafði ekki tíma í þetta lengur sökum anna
við önnur verkefni. Þetta er búinn að vera
skemmtilegur tími og ég óska héraðssam-
bandinu velfarnaðar í framtíðinni,“ sagði
Jóhann Björn Arngrímsson, fráfarandi
formaður HSS.
Frá vinstri: Vignir Örn Pálsson, nýkjörinn
formaður HSS, Helga Guðrún Guðjónsdóttir,
formaður UMFÍ, og Jóhann Björn Arngríms-
son, fráfarandi formaður HSS.
Jóhann Björn Arngrímsson, fráfarandi for-
maður HSS, afhendir Rósmundi Númasyni
bikar, en Rósmundur var kjörinn íþrótta-
maður HSS 2009.