Skinfaxi - 01.08.2010, Qupperneq 10
10 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Sunna
Gestsdóttir
Sunna Gestsdóttir frjálsíþróttakona var
lengi vel fremst í hópi kvenna hér á landi.
Sunna, sem er 34 ára að aldri, á enn
Íslandsmetin í 100 metra hlaupi og lang-
stökki. Metið í 100 metra hlaupinu er
11,67 sekúndur og langstökksmetið er
6,30 metrar. Sunna hélt að langstökks-
metið myndi falla í fyrra en nokkrum
sinnum var höggvið ansi nálægt því.
Síðustu ár hafa farið í
barneignir og nám
„Ég sjálf get farið að keppa í öldunga-
flokki á næsta ári. Það er aldrei að vita nema
maður taki fram skóna og keppi á öldunga-
móti,“ sagði Sunna.
Sunna býr á Blönduósi í dag, þjálfar ung-
mennin þar í frjálsum íþróttum og starfar
einnig sem einkaþjálfari í bænum. Hún hefur
einnig verið í námi síðustu ár en á sl. vori
kláraði hún meistaranám í heilbrigðisvísind-
um frá Háskólanum á Akureyri. Eins og hún
kemst að orði sjálf í spjalli við Skinfaxa hafa
síðustu ár farið í nám og barneignir eða frá
því að hún hætti í spriklinu.
„Síðasta mótið, sem ég tók þátt í, var í
frjálsíþróttahöllinni í Laugardal en þá var
einmitt um vígslumót hallarinnar að ræða.
Þetta var árið 2006 og gaman að hafa fengið
tækifæri til að keppa í þessari höll sem frjáls-
íþróttafólk var búið að bíða lengi eftir,“ sagði
Sunna.
Þjálfar krakka á Blönduósi
Hún sagðist aðspurð hafa nóg fyrir stafni
á Blönduósi. ,,Það var opnuð hér glæsileg
líkamsræktarstöð og ný sundlaug í sumar
og þar virkja ég íbúa Blönduósbæjar og
nágrennis til að nýta þessa flottu aðstöðu
sem hér er risin. Ég hef annars nóg fyrir
stafni auk þjálfarastarfsins hjá krökkunum
í USAH. Á fyrstu æfingar í byrjun október
mættu 35 krakkar þannig að áhuginn er
HVAR
ERU ÞAU
Í DAG?
„Aldrei að vita nema
maður taki fram
skóna og keppi á
öldungamóti“
Sunna Gestsdótt-
ir á Íslandsmetin
í 100 m hlaupi og
langstökki.
Á myndinni hér
til hliðar kemur
Sunna fyrst í mark
á Landsmóti UMFÍ
á Egilsstöðum
2001.
svo sannarlega til staðar. Á æfingarnar, sem
fara fram í íþróttahúsinu, koma krakkar frá
Blönduósi og eins úr sveitunum hér um
kring. Ég sé fram á skemmtilegan vetur með
krökkunum sem eru mjög áhugasöm.“
– Hvernig finnst þér að fylgjast með af
hliðarlínunni?
„Það var erfitt fyrst eftir að maður hætti.
Ég fylgist vel með þeim efnilegu krökkum
sem við eigum í dag. Það verður spennandi
að fylgjast með Helgu Margréti og eins
Sveinbjörgu Zóphóníasdóttur frá Hornafirði
í framtíðinni,“ sagði Sunna Gestsdóttir í
samtali við Skinfaxa.
Minnisvarði
afhjúpaður
í Borgarnesi
Á Unglingalandsmótinu í Borgarnesi
var afhjúpaður bautasteinnn sem
verður minnisvarði um mótið. Annar
bautasteinn stendur við hliðina, en
hann er minnisvarði um Landsmótið
sem haldið var í Borgarnesi 1997. Það
voru Helga Guðrún Guðjónsdóttir,
formaður UMFÍ, og Páll Brynjars-
son, sveitarstjóri í Borgarbyggð, sem
afhjúpuðu minnisvarðann.
Helga Guðrún Guðjóns-
dóttir, formaður UMFÍ,
og Páll Brynjarsson,
sveitarstjóri Borgar-
byggðar, við athöfnina.