Skinfaxi - 01.08.2010, Side 27
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 27
Víkingur í Ólafsvík vann
sér sæti á ný í 1. deild
Ungmennafélagið Víkingur í Ólafsvík
tryggði sér sigur í 2. deild Íslandsmótsins í
knattspyrnu í sumar og leikur því að nýju í 1.
deild á næsta keppnistímabili. Víkingar tóku á
móti Víði úr Garði í næstsíðustu umferð mótsins og
fóru með sigur af hólmi, 3:1. Eftir þann sigur voru þeir búnir
að vinna 2. deildina. Víkingar tóku á móti bikarnum í leikslok,
en það var Gylfi Þór Orrason, varaformaður KSÍ, sem afhenti
þeim hann. Liðið hefur leikið sérlega vel í sumar og er vel að
þessum titli komið.
Sameiginlegt lið BÍ/Bolungarvík fylgdi Víkingi í Ólafsvík
upp í 1. deild með því að lenda í öðru sæti í 2. deild. Sannar-
lega glæsilegur árangur hjá þessu unga og efnilega liði.
Tindastóll vann 3. deild
Ungmennafélagið Tindastóll á Sauðárkróki
bar sigur úr býtum í 3. deild Íslandsmótsins í
knattspyrnu. Tindastóll leikur því í 2. deild á
næsta ári ásamt Dalvík/Reyni. Þessi lið áttust við í
hreinum úrslitaleik um sigurinn í 3. deild á Ólafs-
firði. Fyrir leikinn voru þessi lið reyndar búin að tryggja sér
sæti í 2. deild, en samt sem áður var mikil stemning fyrir þess-
um leik enda um nágrannaslag að ræða. Tindastóll sigraði í
leiknum, 1:0, með marki frá Arnari Sigurðssyni í fyrri hálfleik.
Bæði liðin áttu sín í færi í leiknum sem var skemmtilegur og
fjörugur á köflum.
Knattspyrnulið Tindastóls,
Íslandsmeistarar í 2. deild karla.
Ármúla 30 | 108 Reykjavík | Sími 560 1600 | www.borgun.is
Borgun hefur sérhæft sig í öruggri greiðslumiðlun í
30 ár. Þekking okkar og reynsla nýtist viðskiptavinum
á hverjum degi, allan sólarhringinn.
Borgun býður:
Allar gerðir posa á hagstæðum kjörum
Öruggar lausnir fyrir vefverslanir
Skilvirka leið við innheimtu boðgreiðslna
Notendavæna þjónustuvefi
Hafðu samband í 560 1600 eða
borgun@borgun.is og fáðu tilboð í
færsluhirðingu.