Ægir - 01.08.1937, Síða 9
Æ G I R
163
Svalbarð. — Bjarnarey.
Nokkur undanfarándi ár hafa Norð-
menn stundað fiskveiðar að mun á mið-
unum kringum Svalbarð og Bjarnarey.
A Svalbarði eru tvær verstöðvar, þar
sem skipin geta lagt fisk sinn á land, et'
þau vilja, og einnig geta þau fengið þar
nauðsynlegustu útgerðarvörur.
Önnur verstöðin heitir N}rja Álasund
(hét áður Kings Bay) og hafa Norð-
menn í hyggju að gera þar ýmiskonar
mannvirki, til þess að enn fleiri skip
geti rekið þaðan veiðar en nú. Fiski-
málasíjórinn norski lagði til að þingið
veitti á síðustu fjárlögum 50 þús. kr. til
verstöðvarinnar i N)rja Álasundi, en það
fékkst ekki samþykkt. Umræðurnar í
norska þinginu um þetta mál leiddu
eigi að síður í ljós, að þelta mál'væri
svo merkilegt og þýðingarmikið fyrir
norskan sjávarútveg, að það yrði að tak-
ast til rækilegrar athugunar á næstunni.
Jafnan er nokkuð af norskum fiski-
mönnum, er lítt hafast að á sumfum,
hæði vegna þess að rýrt er um aila
heima fyrir og eins liins, að þeir hafa
ekki svo stóra báta, að þeir dugi þeim
á djúpmiðum eða fjarlægum veiðisvæð-
um. Þessum atvinnulitlu fiskimönnum
á í framtíðinni að hjálpa til þess að
stunda fiskveiðar við Svalharð og Bjarn-
arey, og verður það meðal annars gert
með því, að koma upp verstöðvum á
Svalbarði, svo að fiskimennirnir geti
haldist þar við meðan á vertíðinni
stendur.
í fyrra sumar var þurrkað talsvert af
saltfiski á Svalharði og heppnaðist það
ágætlega; í sumar mun einnig verða
reynt að þurrka þar eitthvað af saltfiski.
Yfirleitt hafa menn ekki mikla trú á því,
að Svalbarð sé lientugt lil fiskþurrks,
því að mjög getur brugðið þar til beggja
vona með tíðarfarið, og mun það oftar
vera stirt og mislynt.
Fyrst í júlí fór gufuskipið »Lyngen«
norður að Svalbarði og voru með því
40 farþegar. Þar á meðal var læknir,
sem á að dvelja í NT5rja Álasundi í sum-
ar og veita fiskimönnunum lijálp eftir
því sem þeir þurfa með og aðstæður
leyfa. Með »Lyngen« var kona ein, sem
ætlar að setja upp sumarhótel á Sval-
harði. Hún dvaldi þar einnig í fyrra
sumar og hafði þá gistihús, og hyggur
hún, að margt mæli með því, að í fram-
tíðinni leiti margir menn um sumartím-
ann norður að Svalharði. »Sumarið er
dýrðlegt og þar eru ekki sölstöður fyrr
en 22. ágúst«, mælti frú Lára, en svo heit-
ir konan, sem valið hefir sér Svalharð
fyrir hótelstað.
I fyrra sumar var rannsóknarskip við
Svalbarð og verður það aftur þar í sum-
ar og fram á haust. Á það að rannsaka
dýralífið í sjónum og hafið í kringum
Svalharð. Magister Einar Koefod hefir
fiskirannsóknirnar með höndum. í fyrra
sumar fannst fjallshryggur í hafinu miðja
vegu milli Bjarnareyjar og Svalbarðs og
hyggur Koefod, að hann orsaki nokkuð
hversu þar háttar straumum o. fl.
Fleiri skip frá Noregi stunda nú veið-
ar við Svalbarð og Bjarnarey en nokkru
sinni fyr, þó að llestar útgerðarvörur
hafi stórhækkað í verði miðað við það,
sem verið hefir síðustu árin. Talið er að
þeir bátar, sem síðastl. ár þurftu 2400
kr. til þess að útbúa sig á veiðar við
Bjarnarey komist ekki í ár af með minna
en 3000 kr.
Fiskveiðarnar við Bjarnarey gengu
sæmilega fyrst í sumar. Um miðjan
júnímánúð kom vélskútan »Sos« heim
til Noregs af Bjarnareyjarmiðum og hafði
hún aílað 36 smál. af saltfiski á 13 dög-
um. Fiskurinn var í góðu meðallagi