Ægir - 01.08.1937, Blaðsíða 18
172
Æ G I R
Aberdeen, sem hafa orðið hart i’iti. Fleet-
wood, Milford Haven, Lowestoft og Grims-
by eru ekki betur á vegi staddar. Jafn-
vel Hull, bin mikla hafnarborg, hnígur
að sama ástandinu og hinar fyrrnefndu
borgir. Um mánaðamótin júní og júlí
hafði verið landað í Hull 172 þús. cwts.
meira af fiski en á sama tíma árið áð-
ur, en þó hafði verðmætið orðið 148
þús. sterlpd. minna nú í ár. í Grimsby
hefir aílinn orðið 56 þús. cwts. meiri,
en verðmætið 86 þús. sterlpd. minna. í
júnílok var heildaraíli Englands og Wales
orðinn 443 þús. cwts. meiri en í fyrra,
en verðmæti hans var 183.770 sterlpd.
minna. En sé nú Skotland tekið með,
þá verður útkoman sú, að verðmæti ail-
ans hefir minnkað um V2 milljón sterl-
pd. á sama tíma og aílinn hefir rýrnað
um 3000 cwts.
Það verður að ráða bót á þeirri löm-
un, sem er að grípa um sig í sjávarút-
veginum og því fyr sem það er gcrl því
betra.
Þýzkt skólaskip.
Laugardaginn 14. ágúst kom til Reykja-
víkur þýzka skólaskipið Horsl Wessel.
Skip þelta er alveg nýtl, var því hleypt
af stokkunnm 21. april í vor. Horst Wess-
el er smíðað í stað þýzka skólaskipsins
»Niobe«, er fórst í Eystrasalti 1932. Skip-
ið er 90 m langt, 17 m á breidd og í isi-
ir 5 metra. Það hefir 750 hestaíla hjálp-
arvél, en hún er að öllum jafni ekki not-
uð, nema el' leita þarf hafnar og örðugt
er um innsiglingu. Ilorst Wessel er bú-
ið öllum nýtízkutækjum, eins og berg-
málsmæli, miðunartækjum, firðritun o. fl.
Flestar þjóðir vilja ekki hal'a nema
seglskip fyrir skólaskip og er það rök-
stutt á þá lund, að á seglskipunum komi
»Horst
Wesselc
það bezt í ljós, hvað búi i hverjum ein-
stakling, og að seglskipin séu yfirleitt
bezli skólinn fyrir sjómenn.
A Horst Wessel er 300 manna áhöfn
ogeru þar af 220 sjóliðsforingjaefni. Nem-
arnir verða sjálíir að vinna allt það sem
gert er á skipinu, gera við það sem af-
laga fer og bæta það sem ónýtist. Akk-
erin verða skólapiltarnir að draga upp
með handaíli. Er vinda á þilfari til þess
og er sett í hana vogarstöng. Þarf 30—
40 manns, til þess að draga upp akker-
in, en þau eru allþung, um U/2 smál.
hvort. Skipþetta er mjög fallegt og virð-
ist öllu vera haganlega fyrirkomið í því.
Skipstjórinn á »Horst Wessel« er gam-
alkunnur hér á landi, liann var hér ár-
ið 1929 á rannsóknaskipinu »Meleor« og
heitir Thiele. Skólaskip þetta heitir í höf-
uðið á einum föllnum framherja National-
ista, Horst Wessel, og er allstórt mál-
verk af honum um borð í skipinu.