Ægir - 01.07.1951, Side 48
196
Æ G 1 R
og ráðgert, að mvndi kosta um 3 milljónir
króna.
Strax og kaup þessi voru ráðin voru
keyptar nýjar vélar í fiskimjölsverksmiðj-
una til þess að vinna fiskúrgang og enn
fremur sild og karfa. Hinar nýju Arélar voru
settar upp á árinu 1949 og síðan verið
unnið með þeim, en þangað til var unnið
úr loftþurrkuðum fiskúrgangi. Hefur nýja
verksmiðjan nú unnið talsvert af nýjum
fiski, einltum karfa, og revnzt vel.
Á árinu 1950 var sett upp nýtízku lifrar-
Lræðsla í sambandi við fiskmjölsverk-
smiðjuna, og fer öll lýsisvinnsla á ísafirði
jrar fram nú. Einnig var á síðastliðnu ári
unnið að ýmsum endurbótum verksmiðj-
unnar og steyptur nokkur hluti af þró með
tilliti til vinnslu á síld í stærri stil.
Stjórn Fiskimjöls h.f. skipa: Birgir
Finnsson, Arngrímur Fr. Bjarnason, Kjart-
an J. Jóhannsson, Ketill Guðmundsson og
Ólafur Guðmundsson.
Fiskimjöl h.f. hefur nú skilyrði til þess,
að verða atvinnufyrirtæki til framleiðslu á
allmiklu magni af fiski- og síldarmjöli, svo
og lýsi, en þessar framleiðsluvörur hafa
verið mjög auðseldar og eftirsóttar undan-
i'arin ár eins og kunnugt er.
Sjálft aðalverksmiðjuhúsið er úr stein-
Yerksmiðjuhús Fiski-
mjöls h.f. d ísafirði.
sleypu, tvílyft. Loft úr timbri. Vélasalur
er úr járni og timbri, og mjölgeymsluhús
úr timbri. Mjölgeymslan rúmar um 600
smálestir. Allar byggingar þessar eru á
eignarlóð félagsins.
Olíusamlag útvegsmanna.
Á árinu 1949 var stofnað Olíusamlag út-
vegsmanna á ísafirði. Að því standa út-
gerðarfélögin öll, svo og Djúpbáturinn h.f-
Á síðastliðnu ári reisti samlagið oliustöð
við Suðurgötu hér, í framhaldi af oliu-
stöðvum Shell h.f. og Olíuverzlunar ís-
lands h.f.
Síðastliðið sumar var þar reistur oliu-
geymir, er tekur 380 smálestir, og er hann
ætlaður fyrir jarðolíur (svartoliur), og er
það fyrsta jarðolíustöð á Vestfjörðuni.
Jafnframt voru lagðar leiðslur fram á
bátahafnaruppfyllinguna til afgreiðslu fyr-
ir skip, einkuin togara, sem telja það nauð-
synjamál, að þeir geti hér fengið viðbót
af jarðolíum, þegar á þarf að halda.
Jafnframt hefur Olíusamlag útvegs-
manna gert samninga við Olíuverzlun ís-
lands h.f. og Shell h.f. urn að taka á leigu
stöðvar þeirra og annast nú alla olíu- og
benzínsölu á ísafirði.