Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1952, Blaðsíða 15

Ægir - 01.01.1952, Blaðsíða 15
Æ G I R 9 „Hvernig stenzt þetta dóm reynslunnar?“ „Meiri hluti þeirra gagna, sem til er af þorski síSan 1928, hefur verið ákvarSaður aftur, m. a. með tilliti til þessa eins og ég niinntist á i upphafi. Segja má, að spárnar komi furðanlega heim við raunveruleik- ann, og er það því betra, sem hin eldri gögn eru oft af mjög skornum skammti. Það er þvi vert að drepa á helztu atrið- in, sem sett geta strik í reikninginn. 1. Gögnum ekki rétt safnað, svo að þau gefa ekki rétta mynd af ástandi stofnsins. Samsetning stofnsins getur verið nokkuð breytileg yfir vertíðina. 2. Hinir einstöku árgangar geta orðið nokkuð mismunandi kynþroska, þ. e. vaxt- arhraði þeirra getur verið nokkuð breyti- legur. 3. Dánartalan getur rokkað eitthvað til, þó er það ekki fullrannsakað enn. Við skulum nú að lokum athuga, hvernig spáin kemur heim við hinar raunverulegu sveiflur í aflamagninu, en það gefur í stór- um dráttum til kynna um stærð stofnsins. Mynd 5 skýrir þetta bezt. Fyrst skulum við athuga, hvað feita línan „styrkleiki stofnsins“ táknar. Ef við göngum rít frá árinu 1932 og segjum, að á því ári sé stofn- inn 1000 fiskar, þá segir spáin fyrir 1933, að fiskmagnið eigi að minnka niður í 748, eða um 25.2%. Spáin fyrir 1934 segir, að nú eigi fiskmagnið að minnka um 28.9%, svo að þessir 748 fiskar eru orðnir að 524 fiskuni það ár. Svona getum við haldið áfram með hvert ár. Spáin gefur til kynna stöðuga minnkun stofnsins fram til ársins 1937, en þá eru hinir upprunalegu 1000 fiskar aðeins orðnir 311. Árið 1938 á stofn- inn að vaxa um 4.8%, og spáin gefur til kynna vaxandi stofn fram til ársins 1944, °g er hann það ár orðinn 605 fiskar. Eftir það fer hann minnkandi alveg fram til árs- ins 1950 og er þá kominn niður í 196 fiska. Þetta línurit er eingöngu byggt á aldurs- akvörðunum og á að sýna hlutfallslegan styrkleika stofnsins. Hiin er alveg furðan- lega regluleg. Við skulum nú bera það saman við þær raunverulgu upplýsingar, er við höfum um þorskveiðina á þessu tímabili. Heildar- þorskveiði íslendinga, afla pr. 1000 öngla og afla pr. 100 togtima. Það ber allt að saina brunni. Samræmið er afargott, eins og allir geta séð. Það er að minnsta kosti óhætt að segja, að spáin virðist gefa til kynna allar meiri háttar sveiflur í styrkleika stofnsins. — Hún sýn- ir undantekningarlausa minnkun stofns- ins á árunum 1931—1937 og aukningu 1938—1944. Ég er orðinn nokkurn veginn sannfærður um, að við þekkjum að lang- mestu leyti hin biólogisku grundvallarlög- mál kynþroska hluta stofnsins, dánartöl- una og hve mikið kemur inn af nýliðum á hverju ári. Þekking okkar á yngri hluta stofnsins er ekki eins örugg, en hefur þó aukizt allmikið með merkingum undan- farin ár. Um orsakir hinna mismunandi sterku ár- ganga er enn flest á huldu, við ráðuin tæp- lega við það vandamál enn þá. Það er mjög erfitt að segja, hvaða áhrif hinir einstöku þættir í umhverfinu hafa á eggin og lirf- urnar, til þess þarf fjölbreyttari athuganir en eru á okkar færi í dag. En svo framarlega sem aldursákvarð- anir okkar gefa rétta mynd af stofninum, og ég vil strika undir svo framarlega sem, þá eigum við með nokkuð öruggri vissu að geta sagt fyrir um allar meiri háttar sveifl- ur í stofninum.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.