Ægir - 01.01.1952, Blaðsíða 11
Æ G I R
5
óllum sé nú ljóst, að aldursákvarðanir eru
þýðingarniesti þátturinn i niati okkar á
stofninum.“
..Og á hverju byggið þið aldursákvarð-
anirnar?"
..Aldur fiska er ákvarðaður á hreistri og
kvörnum. Aldur þorsksins er ákvarðaður á
kvörnunum. Mynd 3 sýnir okkur kvörn úr
10 vetra þorski, sem veiddist seinni hluta
vertíðar á Selvogsbanka árið 1933. í kvörn-
unum sjáum við ekki einungis árafjöld-
ann. Ef við beinum athyglinni að tveim
yztu sumarhringjunum, sjáum við, að þeir
eru allfrábrugðnir þeim, sem innar eru.
Hægt er að leiða afar sterkar líkur að þvi,
að þessir hringir myndist eftir að fiskur-
inn er orðinn kynþroska og eru þeir því
nefndir gotbaugar. Hinn kunni norski fiski-
fræðingur Gunnar Rollefsen, núverandi
forstjóri norsku fiskirannsóknanna, benti
fyrstur á þetta einkenni í þorskkvörnunum
og notfærði sér það í rannsóknum sínum á
norska þorskstofninum. Má segja, að Rol-
lefsen hafi opnað alveg nýjar brautir með
rannsóknum sinum. Hafa þessir örmjóu
baugar í þorskkvörninni stóraukið skiln-
ing okkar á lifnaðarháttum fisksins. Þessir
litlu hringir eru undirstaða fræðilegra at-
hugana uin fiskispár.
Allar þær athuganir, sem ég vík að hér
á eftir, eru framkvæmdar á vetrarvertíð
og' er hér aðeins um að ræða þann hluta
stofnsins, sem orðinn er kynþroska, eða
kominn í gagnið eins og við köllum það.
Til þess að skýra þetta er bezt að athuga
ástandið 1951. Það ár var lesinn aldur
2578 fiska og af þeim tilheyrðu 1295 ár-
Kvarnarhluli úr 10 ára gömlum
Þorski, veiddum við suðvcsiur-
tand. Dökku hringirnir mgndasl
a sumrin, en þeir Ijósu á veturna.