Ægir - 01.01.1952, Qupperneq 17
Æ G I R
11
þá, sem fiskveiðar stunda. — Að leitarskip
verði haft á komandi sumri við strendur
Isiands til síldarleitar ásamt fullkomnum
flugvélum. —- Að byggt verði eins fljótt og
tök eru á fullkomið fiski- og hafrannsókn-
arskip, sem gegni líku hlutverki og hið full-
komna rannsóknarskip Norðmanna, G. O.
Sars. —■ Að gerðar verði ýtarlegar tilraunir
með reknetjaveiðar fyrir Suður- og Austur-
landi. Verði byrjað á þeim tilraunum í
aprílmánuði í Mýrarbugtinni. Einnig verði
unnið að þessum tilraunum úti fyrir Aust-
urlandi yfir sumarið og fram eftir haust-
inu.“
Vinnuvélar í þágu sjávarútvegsins. —
Fiskiþingið beinir því til stjórnar Fiski-
félagsins, að hún starfi að því, að hvers
konar hugmyndir um vinnuvélar í þágu
sjávarútvgsins verði fullkomnaðar, svo
sem vélar til lóðabeitingu, beituskurðar,
saltfiskþvotta, smærri beinamjölsvinnslu-
vélar en nú eru fáanlegar, og fleira, og
keiti sér fyrir því, að til þess verði varið
nauðsynlegu fé úr ríkissjóði, þar sem lík-
legt má telja, að það geti orðið verulegur
þáttur í að bæta rekstrarskilyrði sjávar-
útvegsins.“
Fis k veiðiréttiri d'i við Grænland. —
..Fiskiþingið skorar á Alþingi og ríkis-
stjórn að beita sér öflugulega fyrir því, að
íslendingar fái fiskveiðiaðstöðu við Græn-
land og nauðsynlega aðstöðu í landi til at-
hafna í sambandi við fiskveiðar íslenzkra
skipa. Fiskiþingið er meðmælt því, að
þingsályktunartillaga Péturs Ottesen, sem
flutt hefur verið á Alþingi, verði sam-
þykkt.“
Eftirlit með hirðingu véla, tækja, og
fiskibáta. — Fiskiþingið felur stjórn Fiski-
félagsins að beita sér fyrir þvi við fiski-
úeildirnar, að þær tilnefni einn mann eða
fleiri til eftirlits með hirðingu véla og
tækja í fiskiskipum svo og bátunum sjálf-
uni. — Til þess að örva árangur þessa starfs
skal árlega veita viðurkenningu öllum
þeim, sem fram úr skara með hirðusemi.
Fiskiþingið lætur gera viðurkenningar-
skjöl og skal jafnan tilkynna því, hverjir
viðurkenningu hljóta.
Stofntán til smærri vélbáta — „21. fiski-
þing skorar á stjórn Fiskveiðasjóðs íslands
að hlutast til um, að smærri vélbátar sæti
sömu eða svipuðum kostum um lán úr
Fiskveiðasjóði eins og nú er um lán til
stærri vélbáta. — Enn fremur skorar fiski-
þing á stjórn Fiskifélagsins að vinna að
því við ríkisstjórn, að smábátaútvegnum
verði tryggð stofnlán á svipuðum grund-
velli og gilti um lán úr Stofnlánadeild
s jávarútvegsins.“
Fiskmat. — Fiskiþingið telur, að mati á
fiskframleiðslu landsmanna sé í ýmsu
ábótavant og nokkurt misræmi i fram-
kvæmd þess. Fyrir því skorar fiskiþing á
stjórn Fiskifélagsins að beita sér fyrir því,
að á þessu sé ráðin bót. — Enn fremur
skorar fiskiþingið á alla fiskframleiðendur
að vanda sem bezt alla íiskverkun og fara
eftir settum reglum, sem miða að þvi að
auka vöruvöndun, því að reynsla fyrri ára
hefur sýnt, að við erum þess megnugir að
geta framleitt fyrsta flokks fiskafurðir.“
Dragnótaveiðar. ■— „Fiskiþingið mælir
með þvi, að allir firðir verði friðaðir fyrir
dragnótaveiðum."
Samræming olíuverðs. — Fiskiþingið
telur það sanngjarnt og eðlilegt, að verð
á olium frá birgðageymum sé jafnt alls
staðar á landinu og mælir eindregið með
því, að þingsályktunartillaga sú, er Sig-
urður Ágústsson flytur á yfirstandandi
Alþingi verði samþykkt. — Jafnframt
lýsir fiskiþingið yfir því, að það telur mjög
óheppilegt, að aðalolíubirgðarstöðvar séu
allar settar svo að segja á sama stað í stað
þess að hafa nokkrar aðalbirgðastöðvar
fyrir olíur dreifðar út um land til aukins
hagræðis fyrir fiskveiðar og siglingar og
rneira öryggis, ef til hernaðarátaka kynni
að koma. — Skorar fiskiþingið því á ríkis-
stjórn og Alþingi að vinna ötullega að því,
að stærri birgðastöðvum fyrir oliur út um
land verði fjölgað frá þvi sem nú er og sem
allra fyrst. — Einnig beinir fiskiþingið því