Ægir

Årgang

Ægir - 01.01.1952, Side 18

Ægir - 01.01.1952, Side 18
12 Æ G I R Sextugur: Arnór Guá mundsson, skri Sá maður, sem mestan hampa hefur haft af þessu riti, auk ritstjóra þess, er Arnór Guðmundsson skrifstofustjóri Fiskifélags- ins. Arnór varð sextugur 15. febrúar síð- astl. og horfði um svipað leyti á bak 27. starfsári sínu hjá Fiskifélaginu. Það væri býsna ómaklegt, ef Ægir þakk- að honum ekki af alhug stuðning og vin- áttu. Og hví ekki að birta afmælisgrein til Alþingis og ríkisstjórnar að lækka allan dreifingarkostnað á olíum og benzíni svo sem frekast er unnt.“ Landhelgismál. — „Fiskiþingið bendir á þá gífurlegu hættu, sem afkomu lands- manna stafar af eyðingu fiskstofnsins við landið vegna ofveiði og telur, að íslending- um beri einum fullur réttur til fiskimið- anna umhverfis landið. — Fiskiþingið skorar á Alþingi og ríkisstjórn að beita sér nú þegar fyrir því, að viðurkenndur verði á alþjóðavettvangi réttur Islendinga yfir öllu landgrunninu." Skatta- og dýrtiðarmál. — „Fiskiþingið lítur svo á, að skattaálögur ríkis-, bæja- og sveitarfélaga sé nú það hár hundraðshluti af tekjum þegnanna, að engin von sé til, að útflutningsframleiðslan geti innt af hendi þær launagreiðslur, sem þarf til að standast slikar álögur og viðhalda þeim lífskjörum, sem nú eru almennt gerðar kröfur til. Skorar fiskiþingið því á Alþingi og ríkisstjórn, að hlutast til um, að hið fyrsta verði ráðin hót á þvi. — Jafnframt vill fiskiþing'ið vekja athygli stjórnarvald- anna á þeim geigvænlegu áhrifum, sem hækkandi vísitala hefur á rekstrarafkomu útvegsins og skorar á stjórnarvöldin að gera allt, sem unnt er til að útiloka frekari vísitöluhækkun.“ fstofustjóri. úr því afmælið er liðið hjá, engan ætti það að saka. Arnór er fæddur Strandamaður, en upp alinn í Dölum, á þeim slóðum, þar sem stóð taflborð Fagradalsmanna, Skarð- verja og Ballæringa. Að því horði komst Arnór vitanlega aldrei, en ekki fær hann dulið það, hve skemmt honum getur stundum verið að virða fyrir sér taflstöð- una í ljósi sögunnar. Jón á Brekku í Saui’- bæ og Magnús á Laugum stóðu utan við þríhyrning valdamanna í Vestur-DöJum, litu út undan sér og hrostu góðlátlega, þegar mörg úlfsginin vildu i senn gleypa sama jarðarskikann. Ég er ekki fjærri þvi, að Arnór niðji þeirra hafi líka endrum og sinnum gamnað sér við að skyggnast úr fjarlægð á valdastreytu samtímamanna sinna. Hann er reyndar enginn æringi, en svo geta skemmtilegheitin einnig orðið mikil í þeim efnum, að þau bókstaflega dilla. Arnór er að vísu ekki eini njótandi þess- ara gamangletta lífsins, en hins vegar hef ég aldrei orðið annars var en hann væri einungis njótandi, og það verður ekki um alla sagt. Fram til þessa hefur þótt ágæt einkunn í lífsins lögskráningarbók: „Hann er einn af þessum góðu og gömlu embættismönn- um.“ — Hver væri sá, er þekkir til Arnórs G|Uðmundssonar, sem ekki vildi teikna nafn sitt undir þessa einkunn honum til handa, að undanteknu aldursvottorðinu?

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.